Hamraborgarhátíð 31. ágúst

Fjörugt götulíf á Hamraborgarhátíð
Fjörugt götulíf á Hamraborgarhátíð

Hamraborgarhátíðin verður haldin í fjórða sinn í Kópavogi laugardaginn 31. ágúst. Hamraborginni verður breytt í göngugötu þar sem Kópavogsbúar og aðrir gestir geta gert sér glaðan dag. Þar verður m.a. hægt að gera góð kaup á markaðnum „Beint úr skottinu“ og verslanir og önnur fyrirtæki verða með tilboð á vörum sínum og þjónustu.

Hátíðin hefst kl. 11:00 og stendur yfir til kl. 16:00.

Íþróttafélög í bænum kynna starfsemi sína, íþróttafélagið Glóð verður með pönnukökubaksturskeppni og menningarstofnanir bæjarins verða opnar upp á gátt.

Stefán Karl Stefánsson betur þekktur sem Glanni glæpur verður á svæðinu með kandísflos-vagninn sinn og Sirkus Íslands leikur listir sínar. Ungmenni úr Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, verða með skemmtilegar uppákomur.

Allir hafa tækifæri að reyna sig í bandy og blaki hjá HK, misheppnaður töframaður heimsækir okkur og Björn Thoroddsen verður með  örtónleika og kynnir jazz- og blúshátíð sína sem verður í Salnum í október .

Hátíðin er haldin í góðu samstarfi Kópavogsbæjar og verslana og fyrirtækja í Hamraborginni. Markmiðið er að lífga upp á miðbæ Kópavogs.

Þeim, sem hafa hug á að selja vörur sínar í sölutjöldum eða bara beint úr skottinu á bílnum sínum, er bent á að hafa samband í gegnum netfangið: hamraborgarhatid(hjá)kopavogur.is.

Hátíðin var haldin í fyrsta sinn í ágúst 2010 og er talið að þúsundir bæjarbúa hafi komið og notið dagsins í miklu blíðviðri.