Starfsfólk Kópavogsbæjar sem unnið hefur í 25 ár hjá bænum ásamt bæjarstjóra, Ásdísi Kristjánsdóttur.
Starfsfólk sem unnið hefur 25 ár hjá Kópavogsbæ var heiðrað við hátíðlega viðhöfn í Salnum fimmtudaginn 29.janúar.
Öll áttu það sameiginlegt að hafa náð aldarfjórðungi í starfi árið 2025 en sú venja hefur skapast hjá bænum að heiðra fólk í ársbyrjun fyrir 25 ára starfsafmæli árið á undan.
Bæjarstjóri Kópavogs, Ásdís Kristjánsdóttir, ávarpaði gesti og rifjaði meðal annars upp hversu mikið bærinn hefur breyst og vaxið frá árinu 2000 þegar fólkið hóf störf fyrir Kópavogsbæ.
„Kópavogsbær er heppinn að hafa stóran hóp af fólki í vinnu sem nær þeim áfanga að vera í 25 ár í starfi, með starfsreynslu skapast þekking sem er mikilvæg og verðmæt stofnunum okkar. 25 ár eru drjúgur hluti af starfsævinni og ánægjulegt þegar fólk kýs að vera hjá sama vinnuveitanda svo langan tíma,“ sagði Ásdís þegar hún þakkaði starfsfólki fyrir framlag sitt til Kópavogsbæjar.
Sem þakklætisvott fyrir góð störf fær starfsfólk mynd eftir Gerði Helgadóttur, Tillaga að mósaíkmynd, gvassverk frá árinu 1972.
23 fengu viðurkenninguna og eru kennarar fjölmennasti hópurinn en einnig fengu viðurkenningu starfsfólk leik- og grunnskóla, Þjónustumiðstöðvar, Kópavogsvallar og Þjónustuskrifstofu.
Nöfn og vinnustaður þeirra sem fengu viðurkenningu:
Hallgrímur Geir Gylfason grunnskólakennari, Álfhólsskóli
Ingibjörg Jóhannesdóttir deildarstjóri, Álfhólsskóli
Svanfríður Sigurþórsdóttir grunnskólakennari, Álfhólsskóli
Sigríður Kristrún Andrésdóttir grunnskólakennari,Hörðuvallaskóli
Birna Björnsdóttir grunnskólakennari, Kópavogsskóli
Davíð Ketilsson grunnskólakennari, Lindaskóli
Nanna Þóra Jónsdóttir grunnskólakennari Lindaskóli
Valgerður E.Andrésdóttir skólaritari, Lindaskóli
Magnús Orri Sæmundsson grunnskólakennari, Smáraskóli
Þorbjörg Kristjánsdóttir grunnskólakennari , Smáraskóli
Agnes Jóhannsdóttir deildarstjóri, Snælandsskóli
Gunnlaug Hannesdóttir grunnskólakennari, Snælandsskóli
Kristín Pétursdóttir deildarstjóri, Snælandsskóli
Aðalheiður Jóhannsdóttir grunnskólakennari, Snælandsskóla
Kirstín L. Þorstensdóttir deildarstjóri, leikskólinn Álfaheiði
Sigríður Gunnarsdóttir deildarstjóri, leikskólinn Dalur
Margrét Blowers starfsmaður á leikskóla, leikskólinn Lækur
Sigurlína Björg Hauksdóttir leikskólasérkennari, leikskólinn Marbakki
Anna Jóhanna Sigurjónsdóttir starfsmaður á leikskóla, leikskólinn Urðarhóll
Jón Halldór Finnsson tónlistarkennari, Skólahljómsveit Kópavogs
Ólafur Þórður Þórðarson rekstrar- og öryggisstjóri, Skrifstofa þjónustu - UT
Stefán Gunnarsson flokkstjóri, Þjónustumiðstöð
Ómar Stefánsson forstöðumaður, Kópavogsvöllur