Heiðruð fyrir 25 ára starf

Starfsfólk Kópavogsbæjar sem fagnaði 25 ára starfsafmæli 2022 ásamt bæjarstjóra Kópavogs Ásdísi Kri…
Starfsfólk Kópavogsbæjar sem fagnaði 25 ára starfsafmæli 2022 ásamt bæjarstjóra Kópavogs Ásdísi Kristjánsdóttur.

Nítján starfsmenn voru heiðruð fyrir 25 ára starf hjá Kópavogsbæ við hátíðlega viðhöfn í Salnum.

Starfsfólkið átti það sameiginlegt að hafa náð aldarfjórðungi í starfi árið 2022 en sú venja hefur skapast hjá bænum að heiðra fólk í ársbyrjun, fyrir 25 ára starfsafmæli árið á undan. Sem þakklætisvott fyrir góð störf fengu starfsmenn afsteypu af lágmynd eftir Gerði Helgadóttur, sem Gerðarsafn er kennt við.

Bæjarstjóri Kópavogs, Ásdís Kristjánsdóttir, ávarpaði gesti og rifjaði meðal annars upp hversu mikið bærinn hefur breyst á tímabilinu, en fjöldi íbúa voru tæp 20 þúsund árið 1997 en eru tæp 40 þúsund í dag. Þá var Kópavogur austan Reykjanesbrautar að byggjast upp og eingöngu Lindaskóli tekinn til starfa þar.

 

Þessi fengu viðurkenningu

Arna Margrét Erlingsdóttir, menntasvið Kópavogsbæjar,

Árni Jónsson, Álfhólsskóli,

Arna Björg Kristmannsdóttir, Kársnesskóli,

Halldóra Ágústsdóttir, Kársnesskóli,

Sóley Ægisdóttir, Kársnesskóli,

Margrét Inga Bjarnadóttir, Kópavogsskóli

Hallfríður Ólafsdóttir Leikskólinn Álfaheiði

Anna Friðriksdóttir Leikskólinn Fagrabrekka

Helga Adolfsdóttir Leikskólinn Grænatún

Þórunn Jóhannsdóttir Leikskólinn Grænatún

Guðrún Björg Sverrisdóttir Leikskólinn Lækur

Linda Arilíusdóttir Lindaskóli

Hulda Björnsdóttir Salaskóli

Kristín Einarsdóttir Salaskóli

Halldóra Elín Magnúsdóttir Smáraskóli

Elsa Þorfinna Dýrfjörð Snælandsskóli

Denice Baker, leikskólinn Urðarhóll

Klara Sigurmundadóttir Vatnsendaskóli

María Ásmundsdóttir Vatnsendaskóli