Foreldrar barna á aldrinum 15 til 30 mánaða geta nú sótt um heimgreiðslur.
Foreldrar barna á aldrinum 15-30 mánaða geta nú sótt um heimgreiðslur. Heimgreiðslur eru 107.176 kr. á mánuði.
Skilyrði er að barn sé með lögheimili í Kópavogi og sé ekki í vistun hjá dagforeldri eða í leikskóla.
Sjá umsókn um heimgreiðslur
Heimgreiðslur eru greiddar eftirá og verða fyrstu greiðslur greiddar í fyrstu viku október vegna september. Umsókn um heimgreiðslur þarf að berast fyrir 20. dag mánaðar til þess að taka gildi næstu mánaðarmót á eftir.