Hringurinn frumsýndur hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs frumsýnir nýtt verk í febrúar 2012.
Leikfélag Kópavogs frumsýnir nýtt verk í febrúar 2012.

Leikfélag Kópavogs frumsýnir nýtt íslenskt leikverk er nefnist Hringurinn, sunnudaginn 26. febrúar. Verkið er eftir Hrefnu Friðriksdóttur og leikstjóri er Hörður Sigurðarson. Miðaverð er 2.000 kr. en 1.000 fyrir aldraða og öryrkja. Sýningar standa yfir til 10. mars.

Leikritið fjallar um Evgeníu sem lifir fábrotnu lífi og sinnir tilbreytingasnauðu starfi á opinberri stofnun. Dag einn knýja örlögin dyra í mynd rykfallins lögfræðings. Erindi hans er að greina frá fráfalli föðurins sem hún aldrei kynntist og koma til hennar arfi. Föðurarfur Evgeníu er sannarlega óvanalegur og líf hennar tekur í kjölfarið heljarstökk með tvöfaldri skrúfu - upp frá þessu verður ekkert venjulegt í tilveru Evgeníu. En hvað er annars venjulegt!? 

Tólf leikarar taka þátt í sýningunni og fjölmargir aðrir leggja hönd á plóg.  Sváfnir Sigurðarson leggur til tónlist og hljóðmynd og Skúli Rúnar Hilmarsson hannar lýsingu. Guðmann Þór Bjargmundsson sér um myndvinnslu, Rúna Sif Harðardóttir um förðun og að auki koma ýmsir að smíði leikmyndar og leikmuna. 

Frumsýning verður á sunnudag eins og áður segir en aðrar sýningar eru þri. 28. feb, fim. 1. mars, fös . 2. mars, þri. 6. mars, fim. 8. mars og lau. 10. mars. Sýnt er í Leikhúsinu Funalind 2 og sýningar hefjast kl. 20.00. 

 Hópum, 10 manns eða fleirum bjóðast miðinn á 1.200 kr.

Miðapantanir eru í midasala@kopleik.is eða 554-1985. Nánar má fræðast um sýninguna á vef Leikfélags Kópavogs