Innritun í 1. bekk er hafin á Ísland.is

Skólasetning í Salaskóla.
Skólasetning í Salaskóla.

Innritun barna í 1. bekk hjá grunnskólum í Kópavogi fer nú fram í gegnum Ísland.is. Foreldrar og forsjáraðilar skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og eru leidd í gegnum umsóknarferlið á skýran og aðgengilegan hátt. Innritun er hafin.

Innritun í 1. bekk grunnskóla

Flestir grunnskólar í Kópavogi taka nú þegar við umsóknum í gegnum nýju gáttina. Unnið er að lokafrágangi hjá einum skóla og verður hann tengdur inn um leið og því ferli lýkur. Stefnt er að því að allir grunnskólar sveitarfélagsins nýti sama umsóknarferli.

Umsóknin tengist Nemendagrunni, sem styður við að grunnupplýsingar séu samræmdar og réttar í ferlinu. Unnið er með upplýsingar í samræmi við kröfur um persónuvernd.

Haustið 2026 munu skólar hefjast með skólasetningu þriðjudaginn 25. ágúst. Nánari upplýsingar um skólabyrjun munu birtast á heimasíðum skólanna.