Frá vinstri: Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, deildarstjóri grunnskóladeildar Kópavogs, Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs Kópavogs, Páll Harðarson, formaður stjórnar Ísaksskóla, Sigríður Anna Guðjónsdóttir, skólastjóri Ísaksskóla, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Orri Vignir Hlöðversson, formaður bæjarráðs Kópavogs
Kópavogsbær hyggst ganga til samninga við Skóla Ísaks Jónssonar um rekstur nýs skóla í Vatnsendahvarfi. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Páll Harðarson stjórnarformaður hafa ritað undir viljayfirlýsingu um undirbúning og rekstur skólans sem verður samrekinn leik- og grunnskóli fyrir leikskólabörn og nemendur í 1.–4. bekk.
Ísaksskóli í Bólstaðarhlíð verður áfram starfræktur í óbreyttri mynd en bætir við sig starfsstöð í efri byggðum Kópavogs. Skólinn, sem fagnar 100 ára afmæli í ár, hefur sérhæft sig í kennslu yngri barna, frá fimm ára og upp í níu ára aldur.
„Ísaksskóli í efri byggðum Kópavogs er afskaplega jákvætt skref fyrir Kópavogsbúa. Á þessu ári fagnar Skóli Ísaks Jónssonar 100 ára afmæli sínu. Í heila öld hefur Ísaksskóli byggt upp sterkar menntunarhefðir með skýrar áherslur á faglegt starf með yngstu börnunum. Starfsemi skólans, metnaður og skipulag fellur afar vel að menntastefnu Kópavogs. Við erum afskaplega stolt af því að Ísaksskóli líti til Kópavogs og vilji byggja hér upp annan skóla og það sé viðurkenning á því góða starfi sem unnið sé í menntamálum í Kópavogi. Þá höfum við sem gegnum forystu í bænum lagt áherslu á að fjölga valkostum og bjóða upp á fjölbreytt rekstrarform í leik- og grunnskólum, það hefur gefist vel. Ísaksskóli verður mikilvæg viðbót við okkar öfluga og metnaðarfulla skólasamfélag,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.
„Í starfsemi Ísaksskóla hefur byggst upp dýrmæt reynsla, öflugur mannauður og traust fagmennska sem við teljum mikilvægt að nýta í þágu menntunar barna víðar. Hér er tækifæri til að þróa nýtt skólasamfélag með skýra, mótaða og jákvæða menntastefnu. Við hlökkum til samstarfs við Kópavogsbæ í að setja á stofn og reka skóla byggður á þeim gildum, gæðum og faglegu starfsháttum sem einkenna Ísaksskóla“ segir Sigríður Anna Guðjónsdóttir skólastjóri Ísaksskóla.
Ekki verða innheimt skólagjöld í nýjum Ísaksskóla fyrir börn innan Kópavogs og mun framlag Kópavogsbæjar til reksturs skólans taka mið af því. Undirbúningur að byggingu skólans er hafinn en að því er fram kemur í viljayfirlýsingu mun Ísaksskóli fá tækifæri til þess að koma að skipulagi og hönnun nýs skóla sem gert er ráð fyrir að hefji göngu sína árið 2029.
Í Vatnsendahvarfi munu rísa 500 íbúðir í fjölbýli og sérbýli og verður lögð áhersla á sjálfbæra og umhverfisvæna byggð. Hverfið er það nýjasta í Kópavogi og stendur á einstökum útsýnisstað, Vatnsendahæð.