Íþróttakona og íþróttakarl ársins 2020 kosin af íbúum

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs, Valgard Reinhardsson íþróttakarl Kópavogs 2019, Berglind …
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs, Valgard Reinhardsson íþróttakarl Kópavogs 2019, Berglind Björg Þorvaldsdóttir íþróttakona Kópavogs 2019 og Jón Finnbogason formaður íþróttaráðs.

Kópavogsbúar geta haft áhrif og kosið um íþróttakonu og íþróttakarl ársins 2020. Valið stendur á milli 10 íþróttamanna sem íþróttaráð Kópavogs valdi úr innsendum tilefningum frá íþróttafélögunum. Kjósa má einn karl og eina konu. 

Rafræn íbúakosning um íþróttakarl og íþróttakonu Kópavogs 2020 verður á heimasíðu Kópavogsbæjar í gegnum þjónustugátt Kópavogs.

Kosning hefst þann 30.desember 2020 og lýkur 10. janúar 2021.

Niðurstaða kosninganna verður síðan kynnt á Íþróttahátið Kópavogs föstudaginn 15. janúar 2021 kl 17:00 í Salnum í Kópavogi, þar sem veitt vera viðurkenningar vegna íþróttaársins 2020. Fyrirkomulag hátíðarinnar fer eftir samkomutakmörkunum og verður kynnt síðar.

Hér má lesa um það íþróttafólk sem er í kjöri og skarað hefur framúr á árinu 2020. 

 

Arnar Pétursson frjálsíþróttamaður úr Breiðabliki

Arnar Pétursson

Arnar Pétursson, langhlaupari, er frjálsíþróttakarl ársins 2020 hjá Breiðabliki. Arnar gekk til liðs við uppeldisfélagið sitt í upphafi árs og hefur á árinu unnið 6 Íslandsmeistaratitla bæði  í götuhlaupum og  langhlaupum á braut. Arnar er besti maraþonhlaupari landsins undanfarin ár og  er  A landsliðsmaður í frjálsum íþróttum. Hann stefnir ótrauður á ólympíulágmark í maraþoni fyrir komandi Ólympíuleika í Tokyó. Arnar er fyrirmynd annarra hlaupara á landsvísu og býr yfir mikilli ástríðu fyrir íþrótt sinni. Auk þess að stunda hlaup sjálfur starfar Arnar sem hlaupaþjálfari og fyrirlesari en hann býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu af hlaupum. 

 

Bjarki Pétursson kylfingur úr GKG

Bjarki Pétursson

Bjarki tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með eftirminnilegum hætti þegar hann setti í fluggír á seinustu holunum og sigraði með 8 högga mun. Bjarki er í A-landsliðinu og var í karlasveit GKG sem sigraði á Íslandsmóti golfklúbba í efstu deild, annað árið í röð. Bjarki komast á þriðja og lokastig úrtökumóta fyrir evrópsku mótaröðina í golfi, European Tour, en hann var eini áhugamaðurinn í mótinu sem náði því afreki. Hann gerðist atvinnumaður í byrjun árs og lék á Nordic League mótaröðinni, þar sem hann lék í fjórum mótum og náði þar best 12. sæti, en sökum Covid19 voru  fá mót í boði.  

 

Ingvar Ómarsson hjóleiðamaður úr Breiðabliki

Ingvar Ómarsson

Ingvar átti mjög gott ár bæði á erlendis sem  og hér heima á Íslandi. Hann varð Íslandsmeistari í tímaþraut, í ólympískum og maraþon fjallahjólreiðum. Hann varð einnig bikarmeistari í götuhjólreiðum og í tímaþraut. Hann keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótum í tímaþraut og ólympískum fjallahjólreiðum í Imola á Ítalíu. Ingvar keppti jafnframt á nokkrum öðrum mótum á vegum UCI erlendis og náði hann m.a. 15.sæti í fjallahjólamóti á C1 stigi í Grikklandi sem er jafnframt hans besti árangur á heimsbikarmóti til þessa. Ingvar er hjólreiðamaður ársins hjá Hjólreiðreiðasambandi Íslands.

 

Karen Sif Ársælsdóttir frjálsíþróttakona úr Breiðabliki

Karen Sif Ársælsdóttir

Karen Sif Ársælsdóttir er frjálsíþróttakona ársins 2020 hjá Breiðabliki.  Hún er Íslands- og bikarmeistari kvenna í stangarstökki bæði innan- og utanhúss.  Karen hefur verið einstaklega sigursæl í sinni grein í ár og  hefur ekki tapað keppni í stangarstökki á árinu. Karen Sif var nýlega valin í A- landsliðið í frjálsum íþróttum fyrir árið 2021. Karen stundar íþrótt sína af alúð og er góður félagi og fyrirmynd. Hún setur stefnuna á enn frekari bætingar í stönginni og æfir núna við mjög góðar aðstæður í Danmörku.

 

Matthildur Einarsdóttir blakkona úr HK

Matthildur Einarsdóttir

Matthildur Einarsdóttir hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið stórt hlutverk í liði HK síðustu ár. Hún er ríkjandi Íslandsmeistari í strandblaki eftir frábæra frammistöðu í sumar og er þetta þriðji Íslandsmeistaratitill hennar í strandblaki. Matthildur er mjög fjölhæfur spilari, kröftug, fylgin sér og mikil keppniskona. Hún var í aðalhlutverki í liði HK sem vann Ofurbikarinn núna í september. Liðið var á mjög góðum stað og á leiðinni í í úrslitakeppni bæði í bikar og í Íslandsmóti þegar mótin voru slegin af sl. vor. Hún hefur verið fastamaður í  A-landsliði Íslands síðustu ár og leikið stórt hlutverk þar. 

 

Patrik Viggó Vilbergsson  sundmaður úr Breiðabliki

Patrik Viggó Vilbergsson

Patrik Viggó er orðinn sterkasti langsundsmaður landsins.  Hann varð fjórfaldur Íslandsmeistari í 50m lauginni núna í sumar. Hann náði lágmörkum fyrir Evrópumeistaramót unglinga sem átti að vera núna í sumar en varð ekki vegna covid 19.  Patrik var einnig búin að ná lágmörkum fyrir Norðurlandameistaramótið sem átti að fara fram núna í desember en hætt var við það. Patrik Viggó er mjög metnaðarfullur sundmaður sem ætlar sér að ná langt og er góð fyrirmynd fyrir yngri sundmenn.  Hann er samviskusamur, vinnusamur og jákvæður. Patrik er í landsliðshóp Íslands í sundi.

 

Sofía Sóley Jónasdóttir tenniskona úr Tennisfélagi Kópavogs

Sofía Sóley Jónasdóttir

Sofía Sóley er nýorðin 18 ára og er ein af efnilegustu tennisspilurum Íslands fyrr og síðar. Hún var valin í kvennalandsliðið einungis 13 ára gömul og varð fyrst Íslandsmeistari kvenna utanhúss 14 ára.  Hún varð Íslandsmeistari kvenna í einliðaleik 2020 og var því að vinna titilinn í annað sinn. Hún hefur staðið sig vel á alþjóðlegum vettvangi og komst í úrslit á Evrópumóti 18 ára og yngri 2018. Hún hefur gegnt lykilhlutverki í landsliði Íslands undanfarin ár sem nýlega náði á topp 90 á styrkleikalista ITF yfir bestu tennisþjóðir heims. Á vellinum er ákefð og sókndirfska hennar helsti styrkleiki.

 

Sóley Margrét Jónsdóttir kraftlyftingakona úr Breiðabliki

Sóley Margrét Jónsdóttir

Sóley Margrét  varð íslandsmeistari í +84kg flokki í réttstöðulyftu á Íslandsmótinu sem haldið var í Fagralundi í sumar  er hún lyfti 212,5kg.  Þá varð hún Íslandsmeistari í +84kg flokki sem og stigahæsta konan í opnum flokki á Íslandmeistaramótinu sem haldið var í september sl.  Þar lyfti  hún 265kg í hnébeygju, 180kg í bekkpressu sem jafnframt er íslandsmet, 220kg í réttstöðulyftu sem er íslandsmet og 665kg í samanlögðu sem er íslandsmet nýtt í +84kg flokki.  Þetta er mesta þyngd sem íslensk kona hefur lyft frá upphafi kraftlyftinga hér á landi.

 

Sonný Lára Þráinsdóttir knattspyrnukona úr Breiðabliki

Sonný Lára Þráinsdóttir

Sonný Lára var frábær í marki íslandsmeistara Breiðabliks á tímabilinu og átti stóran þátt í því að liðið fagnaði Íslandsmeistaratitlinum á dögunum. Sonný er fyrirliði liðsins og er mikill leiðtogi og fyrirmynd innan sem utan vallar.  Sonný lék alla 15 leiki Breiðabliks í Pepsi Max deildinni og fékk einungis á sig 3 mörk sem er stórkostlegt afrek. Sonný átti margar góðar markvörslur í sumar og átti meðal annars stórleik þegar Breiðablik lagði Val í síðasta leik tímabilsins sem var í raun hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn. Sonný er í A-landsliðshóp Íslands sem er á leiðinni á EM í Englandi í sumar.

 

Valgarð Reinhardsson    fimleikamaður úr Gerplu

Valgarð Reinhardsson

Valgarð keppti á Bikarmeistaramóti í febrúar  þar sem hann fór fyrir liði sínu og leiddi það til sigurs. Hann var stigahæsti keppandinn á því mótinu. Ekki hafa verið fleiri mót á árinu hvorki erlendis né hér heima vegna Covid. Hann átti að keppa á Norður Evrópumóti og Norðurlandamóti. Hann keppti á Evrópumeistaramótinu sem haldið var  í Tyrklandi  í  desember,  þar sem hann  lenti hann í 10. sæti á stökki og var fyrsti varamaður inn í úrslit á því áhaldi. Hann átti góð stökk og var hársbreidd frá úrslitum. Í gólfæfingum hafnaði hann 23. sæti og 34. sæti á svifrá.