Íþróttastarf eftir 4.maí

Íþróttastarf barna hefst á ný 4. maí.
Íþróttastarf barna hefst á ný 4. maí.

Frá og með 4.maí verður íþrótta- og sundkennsla barna með hefðbundnum hætti.

50 manna fjöldatakmörkun nær ekki til íþrótta- og æskulýðsstarfs barna á leik- og grunnskólaaldri. Íþrótta- og sundkennsla barna og ungmenna verður með hefðbundnum hætti, bæði út og inni. Æfingar og keppnir í skipulögðu íþróttastarfi barna og ungmenna (yngri en 16 ára) eru heimilar án áhorfenda, hvort heldur utan- eða innanhúss.

Tilslökunin tekur gildi 4. maí 2020 gildir til 1.júní, en aflétting eða framlenging á henni verður endurmetin af stjórnvöldum.

Eftirfarandi er í gildi frá 4.maí er varðar íþróttir fullorðinna:

Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar Eru lokaðar almenningi.

Æfingar og keppnir Æfingar og keppnir skipulagðs íþróttastarfs eru heimilar án áhorfenda með þeim takmörkunum að snertingar eru óheimilar og halda skal 2 metra bili á milli einstaklinga. Notkun á sameiginlegum búnaði, einkum þeim sem snertur er með höndum, skal haldið í lágmarki og ber að sótthreinsa hann á milli notkunar. Óheimilt er að nota búningsklefa, sturtuklefa og aðra inniaðstöðu aðra en íþróttasal og salernisaðstöðu.

Skipulagt íþróttastarf innandyra: Við skipulagt íþróttastarf innandyra mega ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman í einu rými, sem skal vera a.m.k. 800 m².

Skipulagt íþróttastarf utandyra: Við skipulagt íþróttastarf utandyra mega ekki fleiri en sjö einstaklingar æfa eða leika saman í hópi. Séu fleiri hópar við æfingar á sama svæði skal miða við að hver hópur hafi um 2.000 m² til umráða.

Sundæfingar: Sundæfingar eru heimilaðar fyrir allt að sjö manns í einu, hvort sem er inni eða úti, og notkun búnings- og sturtuaðstöðu eftir því sem þörf krefur.