Kakó og piparkökur á boðstólum í Jólalundi.
Kópavogsbær býður upp á ókeypis fjölskyldudagskrá í jólalundi alla sunnudaga á aðventunni. Jólalundurinn sem er í Guðmundarlundi er opinn frá 12-15.
Ekki missa af jólaballinu hennar Rófu, tengingakapphlaupi Giljagaurs, danskennslu með Tásu, sveimandi ævintýraverum, blaðskellandi jólasveinum, rjúkandi heitu kakói, splunkunýjum ratleikjum, jólaföndri í náttúrunni og því að kíkja í fataskápinn í Grýluhelli.
Dagskráin er endurtekin yfir daginn svo að öll ættu að komast að og koma sér í jólastemninguna með ævintýraverum og jólasveinum. Ratleikur, danskennsla, búningamátun, leikir og föndur verður í boði meðan á opnun stendur og hægt verður að kaupa heitt kakó og piparkökur.
Tímasetningar
- Jólaball Rófu er kl. 12:20, 12:50, 13:20, 13:50 og 14:20.
- Örtónleikar barnakóra í Kópavogi eru kl. 12:30 við inngang, 12:50 við kaffihúsið, 13:10 við leiktækin, 13:40 við kaffihúsið og 14:10 við inngang.
- Við hlökkum til að sjá ykkur og njóta fölskylduvænnar samveru í fallegu náttúrunni okkar hér í Kópavogi.
Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs.