Kársnes í alþjóðlegri samkeppni

Kársnes í Kópavogi. Mynd/ONNO ehf.
Kársnes í Kópavogi. Mynd/ONNO ehf.

Alþjóðlegri samkeppni, Nordic Built Cities Challenge, um áskoranir á sex þéttbýlissvæðum á Norðurlöndum er hleypt af stokkunum í dag. Kársnes í Kópavogi er eitt af svæðunum sem valin voru til þátttöku í keppninni. Þar er viðfangsefnið að bæta tengingar milli þróunarsvæðisins og annarra hluta höfuðborgarsvæðisins og auka þannig sjálfbærni byggðarinnar. Með bættum tengingum við áhugaverða staði sem eru skammt undan er hægt að skapa tækifæri bæði fyrir íbúa á Kársnesi og á höfuðborgarsvæðinu öllu.

Auk Kársness voru valin til þátttöku Sege Park í Malmö, Tryggve Lies Plass í Osló, Hans Tavsens Park og Korsgade í Kaupmannahöfn, Runavík í Færeyjum og Kera iðnaðarhverfið í Espoo í Finnlandi. Áskoranir á svæðunum eru af ýmsum toga, frá aðlögun að loftslagsbreytingum til vistvænna samgangna og endurnýtingar efnis úr bæjarrýminu, en eiga það sameiginlegt að vera mikilvægar  á Norðurlöndunum og á heimsvísu.

Keppnirnar á svæðunum sex eru alþjóðlegar og öllum opnar og hver þátttakandi getur tekið þátt í fleiri en einni keppni.

„Það er skemmtilegt að Kársnes sé viðfangsefni alþjóðlegrar keppni og verður áhugavert að sjá hvaða tillögur um svæðið skara framúr að mati dómnefndar. Í Kópavogsbæ ríkir mikill metnaður í skipulagsmálum og uppbyggingu, þátttakan í samkeppninni endurspeglar það og er einkar jákvætt að svæðið hafi verið valið til að vera með í þessari metnaðarfullu samkeppni,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri.

„Við vonumst til góðrar þátttöku í keppninni, hún er tækifæri jafnt fyrir áhugafólk og sérfræðinga úr hópi til dæmis verkfræðinga, arkitekta, skipulagsfræðinga og nemenda til að láta ljós sitt skína og hafa áhrif á þróunina á Kársnesi sem er mjög spennandi svæði sem býður upp á mikla möguleika,“ segir Birgir Sigurðsson skipulagsstjóri Kópavogsbæjar.

Skipuð hefur verið dómnefnd á hverjum stað. Íslensku dómnefndina skipa Guðný Björk Eydal, Hrafnkell Proppé, Karl Benediktsson, Þór Sigfússon og Þóra Kjarval.

Dómnefndin velur allt að fjórar tillögur úr fyrra þrepi til þátttöku í seinna þrepi. Höfundar tillagnanna sem valdar eru í fyrra þrepi fá 300.000 norskar krónur, andvirði um 4,5 milljóna íslenskra króna til að vinna tillögur sínar áfram. Að loknu seinna þrepi er ein tillaga valin og hún verðlaunuð með 250.000 norskum krónum, andvirði tæpra 3,8 milljóna króna .

Nordic Innovation hyggst einnig verðlauna tillögurnar sem valdar eru í öllum keppnunum og hefur til þess 1,2 milljónir norskra króna, andvirði rúmlega 18 milljóna króna.

Nánari upplýsingar og samkeppnislýsingar fyrir svæðin sex er að finna á heimasíðu Nordic Built Cities Challenge, nordicbuiltcities.org/thechallenge/

Skilafrestur tillagna er 17. desember 2015.