Kiwanis styrkir Hrafninn frístundaklúbb

Frá vinstri: Haukur Þ. Sveinbjörnsson, formaður styrktarsjóðs Kiwanis, Svavar Þór Einarsson, gjaldk…
Frá vinstri: Haukur Þ. Sveinbjörnsson, formaður styrktarsjóðs Kiwanis, Svavar Þór Einarsson, gjaldkeri styrktarsjóðs Kiwanis, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri, Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, forstöðumaður Hrafnsins, Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðstjóri menntasviðs og Viktor Berg Guðmundsson, deildarstjóri frístundadeildar.
Á dögunum komu til bæjarstjóra fulltrúar Kiwanis og afhentu Kópavogsbæ 400 þúsund króna styrk sem áætlað er að nýta til að byggja upp nýtt rými í Hrafninum, frístundaklúbb fyrir fötluð börn.
 
Í Hrafninum gefst börnunum tækifæri til að dvelja við leik og skapandi störf eftir að skóladegi lýkur. Starfsemi Hrafnsins fellur undir lög um málefni fatlaðra. Markmið í starfi Hrafnsins er að veita börnum sem þar dvelja öruggt athvarf og bjóða þeim upp á skipulagðar tómstundir við hæfi hvers og eins.
 
Skynúrvinnsluherbergi er rólegt og öruggt rými sem er sérstaklega hannað til að styðja við börn sem eiga erfitt með að vinna úr áreiti úr umhverfinu. Þar geta börn fengið tækifæri til að draga sig í hlé frá hávaða og álagi, slaka á og endurhlaða sig. Slík aðstaða er mikilvæg fyrir okkar starfsemi því hún gerir okkur kleift að mæta þörfum fleiri barna á einstaklingsmiðaðan hátt. Með rólegu rými sem styður skynúrvinnslu getum við aukið vellíðan, öryggi og þátttöku barnanna í daglegu starfi. Við erum því gríðarlega þakklát fyrir þann styrk sem okkur er veittur í að búa til slíkt herbergi hjá okkur í Hrafninum. Segir Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, forstöðumaður Hrafnsins.
 
Kópavogsbær þakkar Kiwanismönnum fyrir styrkinn.