Knattspyrnudeild Breiðabliks fær jafnréttisverðlaun

Borghildur Sigurðardóttir tekur við viðurkenningunni frá Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra
Borghildur Sigurðardóttir tekur við viðurkenningunni frá Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra

Knattspyrnudeild Breiðabliks hlaut í kvöld jafnréttisviðurkenningu jafnréttis- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri afhenti formanni knattspyrnudeildarinnar, Borghildi Sigurðardóttur, viðurkenningarskjal  því til staðfestingar í hálfleik á Kópavogsvelli þar sem áttust við Breiðablik og Þór/KA í meistaraflokki kvenna.

Í rökstuðningi jafnréttis- og mannréttindaráðs segir að knattspyrnudeild Breiðabliks hafi lengi verið í fararbroddi í kvennaknattspyrnu og lagt áherslu á að auka veg og virðingu hennar. „Félagið vinnur eftir jafnréttisstefnu og telur jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs að sú vinna hafi skilað góðum árangri,“ segir í rökstuðningi ráðsins.

Þar segir einnig að félagið geri sömu kröfur til þjálfara drengjaflokka og þjálfara stúlknaflokka og að stúlkum í iðkendahópnum hafi fjölgað jafnt og þétt. „Árið 2012 varð Breiðablik Íslandsmeistari í öllum yngri flokkum kvenna. Félagið hefur lagt áherslu á að  meistaraflokkar og yngri flokkar kvenna hafi sama aðbúnað og sömu æfingaaðstöðu og karlaflokkar.“ Þá sé að verða æ algengara að stúlkur og drengir æfi saman. „Félagið hefur jafnframt lagt sig fram um að auka aðsókn á leiki hjá kvennaliðinu og að veita áhorfendum sömu þjónustu og á heimaleikjum karlaliðsins.“

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem knattspyrnudeild Breiðabliks fær viðurkenningu Kópavogsbæjar í jafnréttismálum.