Komdu á RIFF í Kópavogi

Hljómsveitin Sólstafir.
Hljómsveitin Sólstafir.

Hluti hinnar Alþjóðlegu kvikmyndahátíðar Reykjavíkur (RIFF) fer fram í Kópavogi frá 23. september til 4. október. Má þar nefna viðburði á borð við sundbíó í Kópavogslaug, kvikmyndatónleika í Salnum, bílabíó í Smáralind, einnar mínútu myndanámskeið í Molanum og pallborðsumræður leikstjóra og rithöfunda í Bókasafni Kópavogs. Dagskrána í heild má finna hér að neðan.

RIFF heldur einnig stuttmyndanámskeið fyrir grunnskólanemendur Kópavogs í næstu viku og verður afraksturinn sýndur í Smárabíó, laugardaginn 4. október. Á laugardeginum verður einnig margt um að vera á menningartorfu bæjarins, m.a. verða kvikmyndasýningar í Héraðsskjalasafni Kópavogs og Tónlistarsafni Íslands. RIFF er styrkt með framlagi úr lista- og menningarsjóði Kópavogs. Hlutverk sjóðsins er að efla lista- og menningarlíf bæjarins.

DAGSKRÁ RIFF Í KÓPAVOGI

26. september

Opnunarmynd RIFF í Gjábakka

Gjábakki - Félagsaðstaða eldri borgara.

Kl. 15

Aðgangseyrir: ókeypis og allir velkomnir

Opnunarmynd okkar að þessu sinni er hin íslensk-bandaríska Land Ho! Sérstök aukasýning á myndinni verður í félagsaðstöðunni í Gjábakka í Kópavogi klukkan 15.

Myndin fjallar um tvo eldri menn frá Ameríku, fyrrverandi mága, sem leggja land undir fót og fara í hringferð um Ísland og lenda þar í ýmsum ævintýrum. Von er á aðstandendum myndarinnar til landsins að þessu tilefni og munu þeir spjalla við gesti um gerð og tilurð myndarinnar. 

26. september

Bílabíó í Smáralind

Bílaplan Smáralindar

Kl. 20

Aðgangseyrir: 3000 kr. á bíl

Eftir nokkurra ára hlé snýr bílabíóið aftur á RIFF og verður nú haldið í 3. skiptið. Að þessu sinni munum við sýna gamanmyndina Dumb and Dumber, klassík Farrelly-bræðrana frá 1994. Þessi bráðfyndna vegamynd var ein af þeim fyrstu á ferli Jim Carrey og átti þátt í að gera hann að stórstjörnu. Nú þegar framhaldið er væntanlegt í nóvember er ekki seinna vænna að endurnýja kynninn við þá Harry og Lloyd. Sýningin fer fram fram á bílaplaninu við Smáralind, sem snýr að Garðabæ. Veitingasala verður á svæðinu og heppnir gestir geta unnið inn miða á framhaldið sem verður frumsýnt í Smárabíói í nóvember. Við hvetjum fólk til að ná sér í miða í tíma en alltaf hefur verið uppselt á bílabíó RIFF og takmarkað magn bíla sem kemst að.

30. september

Heiti bíópotturinn

Sundlaug Kópavogs

Kl. 17 til 20

Aðgangseyrir: venjulegt gjald í sund

Hin einstaka pottamenning íslenskra sundlaugargesta er tekin einu skrefi lengra í Heita bíópottinum. RIFF sýnir tvær stuttmyndir úr íslenskum stuttmyndaflokki RIFF í ár, þrjár eldri íslenskar stuttmyndir og Deep Blue einnar mínútu myndaseríu sem varð til í tengslum við Einnar mínútu myndakeppni RIFF, í samvinnu við The One Minutes og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. Kvikmyndagerðarmenn og aðrir valinkunnir gestir mæta í pottana og ræða allt milli himins og jarðar um kvikmyndagerð og framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar.

Á dagskrá verður meðal annars:

Stuttmynd: Ber er hver      Leikstjóri: Ari Eldjárn

Stuttmynd: Requiem          Leikstjórar: Sigríður Soffía/Marinó Thorlacius

Stuttmynd: Steingrímur    Leikstjóri: Haukur Viðar Alfreðsson

1. október

Einnar mínútu myndanámskeið RIFF

Bókasafn Kópavogs

Kl. 10 og kl. 13

Hópur 5. bekkinga í grunnskólum í Kópavogi fær kennslu í einnar mínútu myndagerð. Viktoría Guðnadóttir, listakona, sem hefur sérhæft sig í gerð einnar mínútu mynda kennir námskeiðið en hún hefur kennt gerð slíkra mynda undanfarin ár. Þema námskeiðisins er stríður og friður og verður ungmennaráð UNICEF með fræðslu. Sjónum verður beint að stríðshrjáðum svæðum svo sem Gaza og Suður-Súdan og einnar mínútu myndir sýndir eftir börn sem búa á fyrrnefndum stöðum. Allir grunnskólar í Kópavogi fá að senda sjö nemendur.

1. október

Sólstafir við Hrafninn flýgur

Kvikmyndatónleikar RIFF 2014

Salurinn

Kl. 19:30

Aðgangseyrir er kr. 3.900

Víkingaarfur Íslendinga verður í brennidepli á kvikmyndatónleikum RIFF. Þungarokksveitin Sólstafir flytur eigin tónsmíðar á kraftmikinn hátt við víkingamyndina Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunnlaugsson en kvikmyndin var frumsýnd árið 1984 og fagnar því þrjátíu ára afmæli í ár.

Sólstafir gáfu út plötuna Ótta, sem er þeirra fimmta plata í fullri lengd, í lok ágúst og leika lög af henni, í bland við eldri tónsmíðar, eftir því sem passar við víkingasögu Hrafns.

Hrafninn flýgur gerist á Íslandi skömmu eftir landnám og náði töluverðum vinsældum á Norðurlöndunum og víðar um heim. Kvikmyndatónleikarnir eru einstakur listviðburður þar sem áhorfendur skynja sögu og frásögn Hrafns í gegnum tónlist Sólstafa en ekki í gegnum upprunalegan hljóðheim kvikmyndarinnar.

Sólstafir byrjuðu líf sitt í bílskúr í Breiðholtinu árið 1995 og hafa síðan þá sannað sig sem kraftmikil og eftirminnileg tónleikahljómsveit, með flutningi sínum hér heima og utan landssteinanna.

15% afsláttur á Landnámssýninguna Reykjavík 871±2, Aðalstræti 16, við framvísun miða á kvikmyndatónleika RIFF. 

2. október

Námskeið í einnar mínútu myndagerð

Molinn, Hábraut 2 , Kópavogi

Kl. 20

Ókeypis og allir velkomnir á aldrinum 16 til 25 ára

Viktoría Guðnadóttir, listakona, hefur sérhæft sig í gerð einnar mínútu mynda og kennt gerð slíkra mynda undanfarin ár. Hún mætir í Molann með það að leiðarljósi að fræða ungmenni um þetta örmyndaform og kenna hvað þurfi að huga að við gerð slíkra mynda. Ungmennin eru hvött til þess að taka með tækjabúnað til þess að taka upp og klippa einnar mínútu mynd. Getur verið allt frá farsíma, spjaldtölvu, upptökuvél eða myndavél. Einnig má mæta án tækjabúnaðar.

4. október 

Frumsýning hjá Stuttmyndanámskeiði RIFF

Smárabíó

Kl. 12

Sýning á stuttmyndum frá stuttmyndanámskeiði RIFF 2014. Bæjarstjóri afhendir nemendum, sem eru í 6. og 9. bekk í grunnskólum í Kópavogi, viðurkenningarskjal.

Brot úr kvikmyndasafni Marteins Sigurgeirssonar

Héraðsskjalasafn Kópavogs

Kl. 13 til 17

Sýnd verða atriði úr viðtali Marteins við Sigurð Grétar Guðmundsson og Pétur Sveinsson um hernámsárin og fleira. Einnig verða upptökur sýndar frá starfi Vinnuskóla Kópavogs um 1985.

Sérstök sýning um Kópavogsbíó verður opnuð í anddyri safnsins af þessu tilefni.

Pallborðsumræður: Bók verður bíó

Bókasafn Kópavogs

Kl. 14 til 16

Allt frá upphafi íslenska kvikmyndavorsins hafa kvikmyndagerðarmenn sótt í bókmenntir í leit að efniviði og hafa víða leitað fanga, allt frá Íslendingasögum og yfir í unglingabækur og harðsvíraða krimma. En hvernig er ferlið að breyta bók í bíó? Og er þá enn verið að segja sömu sögu, eða tekur boðskapurinn mark af miðlinum? Valinkunnir íslenskir kvikmyndagerðarmenn og rithöfundar bera saman bækur sínar. Og filmur.

Leikstjórar: Hilmar Oddsson, Guðný Halldórsdóttir, Ágúst Guðmundsson, Baldvin Z, Óskar Þór Axelsson og Ása Hjörleifsdóttir.

Rithöfundar: Einar Kárason, Kristín Marja Baldursdóttir, Hallgrímur Helgason, Ólafur Haukur Símonarson, Ingibjörg Reynisdóttir og Silja Hauksdóttir.

Kvikmyndun á tónlistararfi Íslendinga

Tónlistarsafn Íslands.

Kl. 16 til 18

Bjarki Sveinbjörnsson kynnir verkefni sitt um tónlistararf Íslendinga. Hann hefur ferðast um landið og tekið viðtöl um tónlist við fólk sem man tímana tvenna. Sýnd verður stutt heimildarmynd. Útskriftarverkefni Einars Jóns Kjartanssonar úr grafískri hönnun frá LHÍ verður kynnt. Það er tæknileg varðveisla á sýningunni um ballmenningu, sem stendur nú yfir í safninu. Margrét Arnardóttir, harmonikkuleikari, spilar við þögult myndefni við upphaf viðburðarins.

RIFF-sýning Gullmolans

Molinn

Kl. 17 til 19

Sérstök sýning á keppnismyndum Gullmolans, Stuttmyndakeppni Kópavogs, sem fór fram í sumar. Myndirnar verða sýndar við líflega athöfn.

Vefur RIFF.