Kópasteinn fimmtugur

Leikskólinn Kópasteinn.
Leikskólinn Kópasteinn.

Leikskólinn Kópasteinn fagnar 50 ára starfsafmæli á þessu ári en skólinn var fyrsta dagheimili í Kópavogi. Kennarar, starfsmenn og börn leikskólans fagna þessum tímamótum og efna til hátíðar miðvikudaginn 28. maí.

Upphaflega voru tvær dagheimilisdeildir ásamt einni leikskóladeild á Kópasteini.  Byggt var við skólann á níunda áratugnum, í dag er Kópasteinn fjögurra deilda leikskóli þar sem dvelja 76 börn.

Skólinn leggur áherslu á tónlist og skapandi starf, hefur lengi unnið með lífsleikni og þá hefur umhverfismennt og endurvinnsla verið á oddinum undanfarin ár. „Við höfum notið góðs af frábærri staðsetnigu skólans og erum mjög dugleg að heimsækja menningarhús Kópavogsbæjar sem eru í næsta nágrenni,“ segir Heiða Björk Rúnarsdóttir leikskólastjóri Kópasteins en skólinn er á Borgarholtinu.

Starfsmannahald á Kópasteini hefur verið farsælt og margir eiga langan starfsaldur. „Við í starfsmannahópnum erum þakklát fyrir gott fólk, við höfum átt farsælt samstarf við foreldra og börn og vonum að svo verði áfram. Afmælishátíðin verður mikil gleðistund fyrir okkur,“ segir Heiða Björk.  

Nánari upplýsingar um dagskrá afmælishátíðarinnar er að finna á heimasíðu leikskólans.

Allir eru velkomnir á hátíðina.