Kópavogsbær fékk Bláfánann

Salóme Hallfreðsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson og Hjördís Ýr Johnson við afhendingu Bláfánans í Ýmishö…
Salóme Hallfreðsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson og Hjördís Ýr Johnson við afhendingu Bláfánans í Ýmishöfn 2015.

Kópavogsbær fékk í dag afhentan Bláfánann fyrir Ýmishöfn. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs veitti fánanum viðtöku fyrir hönd bæjarins ásamt Hjördísi Johnson formanni umhverfis- og skipulagsnefndar.  Salóme Hallfreðsdóttir frá Landvernd afhenti viðurkenninguna en Landvernd afhendir Kópavogsbæ Bláfánann fyrir hönd The Foundation for Environmental Education (FEE) . Fáninn er alþjóðleg umverfisviðurkenning fyrir smábátahafnir og baðstrendur.

Þær hafnir sem skarta Bláfánanum hafa uppfyllt skilyrði um umhverfisstaðal og umhverfisfræðslu verkefnisins. Þeir eru hreint umhverfi, öryggisatriði hafnarinna, umgengni og flokkun sorps og úrgangs og markviss fræðslu á þessum þáttum.

Meginmarkmið verkefnisins er að vernda umhverfi í og við smábátahafnir og baðstrendur og þannig tryggja heilbrigði umhverfisins til framtíðar, auk þess að búa í haginn fyrir komandi kynslóðir.

Bláfáninn er mikil viðurkenning fyrir Kópavogsbæ og munu Kópavogsbær í samstarfi við siglingafélagið Ýmir standa að umhverfisfræðslu fyrir starfsmenn Kópaness og félagsmenn Ýmis og þau börn sem verða á siglinganámskeiði sumarið 2015.

Áhersla verður lögð á fræðslu um nærumhverfi hafnarinnar með uppsetningu á fróðleiksskiltum varðandi fuglalíf á svæðinu. Kópavogsbær fær að þessu sinni afhentan Bláfána í þriðja sinn fyrir Ýmishöfn. Fáninn mun blakta við höfnina í Kópavogi fram til 15. september.