Kópavogsbúar ánægðir með bæinn

Kópavogsdalur að sumarlagi.
Kópavogsdalur að sumarlagi.

87% Kópavogsbúa eru ánægðir með sveitarfélagið sem stað til að búa á að því er fram kemur í könnun Gallup á þjónustu 19 stærstu sveitarfélaga landsins. Í könnuninni er spurt um viðhorf til þjónustu sveitarfélagsins í margvíslegum málaflokkum. Mikil ánægja er með aðstöðu til íþróttariðkunar í sveitarfélaginu, þar eru 85% ánægðir, 10% hlutlausir í afstöðu sinni og 5% óánægðir. Þá eru mjög margir ánægðir með gæði umhverfis í kringum heimili sitt, sorphirðu, og þjónustu sveitarfélagsins þegar á heildina er litið bæði út frá reynslu og áliti. Í síðastnefndu spurningunni eru  74% ánægðir, 23% hlutlausir og 3% óánægðir.

Þá var spurt um leiks- og grunnskóla, þjónustu við barnafjölskyldur, menningarmál, skipulagsmál, þjónustu við eldri borgara og fatlaða.

Í öllum málaflokkum er ánægja Kópavogsbúa jafnmikil eða meiri þegar horft er á meðaltal sveitarfélagsins og borið saman við meðaltöl annarra sveitarfélaga.

Í flestum málaflokkum er meirihluti ánægður með þjónustu sveitarfélagsins og í öllum er ánægja meiri en óánægja. Minnst er ánægjan með þjónustu við fatlað fólk eða 38%. Þar eru hins vegar flestir hlutlausir í afstöðu sinni eða 44% og 18% eru óánægðir.

Þátttakendur voru spurðir hvar helst þyrfti að bæta þjónustu sveitarfélagsins. 24% bentu á samgöngumál, 17% á þjónustu við eldri borgara, 13% stjórnsýsluna, en 10% fannst þurfa að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar.

Könnunin var framkvæmd á tímabilinu nóvember til janúar og svöruðu 441 spurningum um Kópavog. 12221 tóku þátt í könnunni í heild sinni. Þátttakendur voru eldri en 18 ára, valdir af handahófi úr viðhorfahópi Gallup og þjóðskrá. Gagnaöflun stóð yfir þar til tilteknum fjölda var náð í hverju sveitarfélagi fyrir sig.

Smelltu hér til að lesa niðurstöður þjónustukönnunar um Kópavog.