Kópavogsbúum boðið á sögulegan leik í kvennaboltanum

Á myndinni eru fyrirliði Breiðabliks, Agla María Albertsdóttir og fyrirliði HK, Ísabella Eva Aradót…
Á myndinni eru fyrirliði Breiðabliks, Agla María Albertsdóttir og fyrirliði HK, Ísabella Eva Aradóttir.

Breiðablik og HK mætast í 8- liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna á morgun, fimmtudaginn 12.júní. Leikurinn er sögulegur þar sem Kópavogsliðin, Breiðablik og HK, mætast í fyrsta skipti í meistaraflokki kvenna.

Í tilefni tímamótanna og 70 ára afmælisárs Kópavogsbæjar er Kópavogsbúum boðið á leikinn og eru allir íbúar hvattir til að fjölmenna á leikinn og styðja við stelpurnar.

„Kvennafótboltinn hefur alltaf verið mjög sterkur í Kópavogi og við viljum að sjálfsögðu fagna þessum tímamótum með Kópavogsbúum þegar HK og Breiðablik mætast í fyrsta sinn í meistaraflokki. Þá styttist í EM kvenna í fótbolta og stærsta fótboltamót sumarsins á Íslandi, Símamótið, þegar stelpur um allt land mætast í Kópavogi um miðjan júlí. Við viljum styðja við stelpur í fótbolta og teljum því tilvalið að nýta tækifærið nú þegar Kópavogsliðin eru að mætast í bikarúrslitum. Ég vona að sem flestir Kópavogsbúar mæti á Kópavogsvöll og styðji sitt lið - já eða bara bæði Kópavogsliðin.“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.

Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli og hefst klukkan 20.00.