Kópavogur fær Bláfánann

Kópavogur fær Bláfánann 2016.
Kópavogur fær Bláfánann 2016.

Kópavogsbær fékk afhentan Bláfánann fyrir Fossvogshöfn í fjórða sinn í gær, fimmtudaginn 23. júní. Salóme Hallfreðsdóttir frá Landvernd afhenti Hjördísi Johnsonformanni umhverfis- og skipulagsnefndar sem veitti fánanum viðtöku fyrir hönd bæjarins ásamt.  

Landvernd afhendir Kópavogsbæ Bláfánann fyrir hönd The Foundation for Environmental Education (FEE) . Fáninn er alþjóðleg umverfisviðurkenning fyrir smábátahafnir og baðstrendur.

Þær hafnir sem skarta Bláfánanum hafa uppfyllt skilyrði um umhverfisstaðal og umhverfisfræðslu verkefnisins. Þeir eru hreint umhverfi, öryggisatriði hafnarinna, umgengni og flokkun sorps og úrgangs og markviss fræðslu á þessum þáttum.

Meginmarkmið verkefnisins er að vernda umhverfi í og við smábátahafnir og baðstrendur og þannig tryggja heilbrigði umhverfisins til framtíðar, auk þess að búa í haginn fyrir komandi kynslóðir.

Bláfáninn er mikil viðurkenning fyrir Kópavogsbæ og munu Kópavogsbær í samstarfi við siglingafélagið Ýmirstanda að umhverfisfræðslu fyrir starfsmenn Kópaness og félagsmenn Ýmis og þau börn sem verða á siglinganámskeiði sumarið 2016.

Áhersla verður lögð á fræðslu um nærumhverfi hafnarinnar með uppsetningu á fróðleiksskiltum varðandi fuglalíf á svæðinu. Fáninn mun blakta við höfnina í Kópavogi fram til 15. september.