Kópavogur fagnar 70 árum

Halla Tómasdóttir forseti Íslands sótti Kópavog heim á afmæli bæjarins.
Halla Tómasdóttir forseti Íslands sótti Kópavog heim á afmæli bæjarins.

Það var mikið um dýrðir í dag þann 11. maí þegar Kópavogur fagnaði 70 ára afmæli sínu með hátíðarhöldum við menningarhús bæjarins.

Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir og eiginmaður hennar hr. Björn Skúlason heiðruðu samkomuna og flutti forsetinn ávarp fyrir tónleikagesti Salarins.

Frú Halla er fyrrum íbúi á Kársnesinu og sagði frá þeim breytingum sem hafa átt sér stað síðan hún var barn, uppvexti í bænum og félögum sem hún tilheyrði. Þá þakkaði hún fyrir dásamlegar stundir í Kópavogi og óskaði öllum innilega til hamingju með afmælið.

Mikil dagskrá var í öllum húsunum enda hápunktur uppskeruhátíðar Barnamenningarhátíðar Kópavogs en henni lauk í dag. Allt frá smíðavelli, vatnssulli og stultugöngu til tónleika barnakóra Kópavogs, Marimbuhljómsveit, trúða og alls kyns smiðjur og fjör.