Kópavogur í Útsvari

Lið Kópavogs í Útsvari 2016. Frá vinstri: Katrín Júlíusdóttir, Gunnar Reynir Valþórsson og Skúli Þó…
Lið Kópavogs í Útsvari 2016. Frá vinstri: Katrín Júlíusdóttir, Gunnar Reynir Valþórsson og Skúli Þór Jónasson.

Kópavogur mætir Vestmannaeyjum í Útsvari á morgun, föstudaginn 9. desember. Lið Kópavogs skipa að þessu sinni þau Gunnar Reynir Valþórsson, Katrín Júlíusdóttir og Skúli Þór Jónasson. Katrín tekur nú þátt í keppninni í fyrsta sinn en Gunnar Reynir og Skúli skipuðu einnig liðið í fyrra. Þetta er í 10. sinn sem Kópavogur tekur þátt í Útsvari. 

Kópavogur hefur tekið þátt í keppninni frá upphafi, en þátturinn hóf göngu sína árið 2007.

Nánar um keppendur Kópavogsbæjar:

​Gunnar Reynir Valþórsson er fertugur fréttamaður hjá 365, menntaður í stjórnmálafræði. Á tvö börn, stelpu og strák, tíu og sextán ára. Spilar á gítar í þungarokkshljómsveitinni Strigaskór nr. 42 annað slagið. Ólst upp í austurbænum, fyrst í Furugrundinni og síðan í Álfatúni og gekk í Snælandsskóla. Eftir grunnskóla lá leiðin svo auðvitað í MK.

Katrín Júlíusson er 42 ára framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja ásamt að því að vera fyrrverandi ýmislegt. "Ég er die hard Kópavogsbúi með aðsetur í Garðabæ. Er alin upp í Álfatúni frá 9 ára aldri og gekk í Snælandsskóla og síðan auðvitað MK. Hef megnið af ævinni búið fyrir neðan Nýbýlaveginn og lít á það sem þorpið mitt. Telst til að ég hafi búið á sjö stöðum í Kópavogi að æskuheimilinu frátöldu. Á fjóra stráka, sautján ára MK-ing og handboltamann í HK, sextán ára stjúpson sem býr í Bergen og fjögurra ára tvíbura með eiginmanni mínum Bjarna Bjarnasyni rithöfundi. Ég stúderaði mannfræði við lok síðustu aldar, samhliða því að sjá um innkaup fyrir barnafataverslanir sem hétu Lipurtá. Er jafnframt með MBA gráðu frá HR. Áður en ég fór þing þar sem ég sat í rúm þrettán ár og gengdi meðal annars starfi ráðherra ýmissa mála, var ég verkefnastjóri og ráðgjafi í tölvubransanum."

Skúli Þór Jónasson er 24 ára háskólanemi. Hann kemur úr úr Snælandshverfinu í Kópavogi og hefur búið þar alla tíð. Keppti tvisvar í Gettu Betur í sjónvarpinu fyrir MH.  Lauk BS í heilbrigðisverkfræði frá HR 2014 og hóf þar BS nám í tölvunarfræði síðastliðið haust.  Hann er einnig sellóleikari til margra ára og hefur lokið framhaldsprófi í sellóleik frá Tónlistarskóla Kópavogs.