Kópavogur stækkar

Vífilsfell, innan lögsögu Kópavogs samkvæmt úrskurði Hæstaréttar frá 16. nóvember 2017.
Vífilsfell, innan lögsögu Kópavogs samkvæmt úrskurði Hæstaréttar frá 16. nóvember 2017.

Hæstiréttur hefur staðfest að 8.000 hektara landsvæði austan Heiðmerkur og að Bláfjöllum lúti lögsögu Kópavogs. Hæstiréttur kemst þannig að sömu niðurstöðu og Héraðsdómur Reykjavíkur, sem dæmdi í málinu í ágúst 2016. Reykjavíkurborg áfrýjaði þeim dómi.

Reykjavíkurborg gerði kröfu um að 8.000 hektara landsvæði lyti lögsögu borgarinnar. Af þessum um 8.000 hekturum höfðu áður um 5.000 verið innan staðarmarka Kópavogs og stækkar lögsaga bæjarins um 3.000 hektara. Skipulagsvald svæðisins færist því til Kópavogs frá Reykjavíkurborg.

Inn­an um­rædds svæðis eru meðal ann­ars Bláfjöll, Þríhnjúk­ar, Víf­ils­fell og Sand­skeið.

Dómur Hæstaréttar

Kort sem sýnir svæðið