Kosning hafin í Okkar Kópavogi

Leiktæki á Rútstúni sem valin voru af íbúum í Okkar Kópavogi 2018.
Leiktæki á Rútstúni sem valin voru af íbúum í Okkar Kópavogi 2018.

Kosning er hafin í íbúaverkefninu Okkar Kópavogur. Alls eru 100 hugmyndir í kosningu, 20 í hverju hverfi. Kosningin er rafræn og geta íbúa Kópavogs tekið þátt. Hugmyndirnar eru af mjög fjölbreyttum toga og kosta frá 1 til 25 milljóna í framkvæmd. Hverfunum hefur verið ráðstafað fé í hlutfalli við fjölda íbúa en alls verður 200 milljónum varið til framkvæmda verkefnanna.

Kosning stendur frá 25. janúar til 4. febrúar. Hugmyndasöfnun verkefnisins fór fram í haust, bæði á vef verkefnisins og íbúafundum. Með verkefninu Okkar Kópavogur er verið að efla íbúalýðræði í bænum og auka samráð íbúa og bæjaryfirvalda.

Flest verkefnin sem nú eru í kosningu snúa að útivistarsvæðum bæjarins, leik- og grunnskólalóðum eða umferðarmálum.

Þetta er í þriðja sinn sem íbúar kjósa á milli hugmynda og forgangsraða þannig verkefnum sveitarfélagsins. Meðal þess sem íbúar völdu í kosningum 2018 voru öryggismyndavélar í Lindahverfi, bætt aðstaða á Rútstúni og bætt aðstað á opnum svæðum.

Íbúar Kópavogs, 16 ára og eldri geta tekið þátt í kosningunni. Velja þarf eitt hverfi til að kjósa í en þátttakendur þurfa ekki að velja hverfi eftir búsetu. Þess má geta að hægt er að gefa hugmynd tvöfalt vægi með því að gefa henni hjarta. Það er góður kostur fyrir þá sem vilja koma einni ákveðinni hugmynd á framfæri.