Handhafar Kópsins árið 2025.
Kópurinn, viðurkenningar menntaráðs Kópavogs fyrir framúrskarandi grunnskóla- og frístundastarf í Kópavogi, var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum fimmtudaginn 22. maí. Alls bárust 19 tilnefningar um 18 verkefni til menntaráðs og voru veittar fimm viðurkenningar fyrir verkefni sem þóttu fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skóla og frístundastarfi.
Viðurkenningar:
- Toppönd í Salaskóla: Þórunn Guðrún Einarsdóttir, Gígja Jónsdóttir, Guðlaug Björk Eiríksdóttir og Brynhildur Helga Nikulásdóttir hlutu viðurkenningu fyrir námsúrræðið Toppönd í Salaskóla. Um er að ræða náms- og félagslegt úrræði fyrir nemendur á unglingastigi sem þurfa fjölbreyttan stuðning, t.d. námslegan, félagslegan, sálrænan og við skólaforðun. Nemendur með ólíkar þarfir sækja úrræðið og eru allir velkomnir. Starfið einkennist af stuðningi, trausti og hlýju.
- Lestrarhagkerfi í Snælandsskóla: Guðmunda Hrönn Guðlaugsdóttir í Snælandsskóla hlaut viðurkenningu fyrir lestrarhagkerfi bókasafnsins, skemmtilegt hvatningarkerfi sem eykur lestrarfærni og áhuga nemenda. Nemendur safna „peningaköllum“ fyrir lesnar blaðsíður og geta nýtt þá í bókasafnsbúðinni til að kaupa varning sem þar er í boði. Verkefnið sameinar yndislestur, hvatningu og grunn í fjármálalæsi með leikrænum hætti.
- Friðheimar í Hörðuvallaskóla: Kristín Friðbjörnsdóttir, Tinna Ástrún Grétarsdóttir, Leifur Heiðar Leifsson og Matthildur Þorvaldsdóttir í Hörðuvallaskóla fengu viðurkenningu fyrir Friðheima – nýtt skynúrvinnslurými sem styður nemendur sem þurfa ró og aukinn stuðning. Rýmið er hannað með mjúkri lýsingu, róandi tónlist og hjálpartækjum sem stuðla að jafnvægi í taugakerfi og bættri sjálfsstjórn. Friðheimar hafa reynst dýrmæt viðbót við skólastarfið, bætt líðan nemenda, dregið úr álagi í bekkjum og skapað stuðningsumhverfi fyrir fjölbreyttan hóp barna.
- Rödd fólksins í Kóraskóla: Tanja Rut Hermansen, Elsa Sigrún Elísdóttir, Elín Hulda Harðardóttir, Anna Sólveig Snorradóttir og Inga Vigdís Baldursdóttir, kennarar í Kóraskóla, hlutu viðurkenningu fyrir verkefnið Rödd fólksins. Verkefnið var hluti af fjögurra vikna þemavinnu um stjórnmál sem sameinaði ýmsar námsgreinar. Nemendur stofnuðu stjórnmálaflokka, tóku þátt í kosningum, greindu gögn, kynntu mannréttindi og tóku þátt í rökræðum. Með samþættri nálgun var lögð áhersla á lýðræði, gagnrýna hugsun, fjölbreytta tjáningu og virka þátttöku. Verkefnið efldi sjálfstæði, samvinnu, læsi á ólíkum miðlum og skilning á samfélagsmálum.
- Tengslatorg í Hörðuvallaskóla: Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir, Íris Björk Eysteinsdóttir og Hildur Jónasdóttir, skólastjórnendur Hörðuvallaskóla fengu viðurkenningu fyrir verkefnið Tengslatorg sem styrkir tengsl heimila og skóla með það að markmiði að efla velferð, líðan og félagsstöðu nemenda. Það byggist á þremur meginþáttum:
- Fræðsla fyrir foreldra um uppeldi, mörk og mikilvægi samveru.
- Líðanfundir (Tengslatorg) þar sem foreldrar ræða saman – með samþykki barna – um líðan þeirra og félagslega stöðu.
- Farsældarsáttmáli, þar sem sameiginleg viðmið um t.d. svefn og skjátíma eru mótuð í samstarfi foreldra og skóla.
- Verkefnið eykur traust, samstöðu og stuðning meðal foreldra og milli skóla og heimila. Það hefur leitt til betri bekkjaranda, aukinnar vellíðanar nemenda og styrkara baklands barna. Tengslatorgið auðveldar einnig nýjum foreldrum að kynnast og mynda tengsl.
Önnur verkefni sem tilnefnd voru til Kópsins:
Sjálfsást í samstarfi við félagsmiðstöðina Pegasus, Bílamódel, Námsval, Stigskipt íslenska og Sund fyrir alla í Álfhólsskóla
Land og þjóð – saga Íslands Hörðuvallaskóla.
Stuttmyndagerð í Kópavogsskóla
Okkar eigin hamfarir, Áhrifarík saga og Styrjaldir í Kóraskóla
Leikfélagið Þröstur og Snillismiðja: tölvustudd hönnun og framleiðsla í Salaskóla
Söngleikur í 6. Bekk í Snælandsskóla