Kynningarfundur um tillögur að breyttu skipulagi í Vatnsendahvarfi

Úr tillögu að breyttu skipulagi Vatnsendahvarfs.
Úr tillögu að breyttu skipulagi Vatnsendahvarfs.

Þriðjudaginn 16. maí 2023 verður opinn kynningarfundur í sal Vatnsendaskóla um tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi í Vatnsendahvarfi.

Fundurinn hefst klukkan 17.00 og lýkur klukkan 18.30.

Fundurinn verður tekinn upp og honum streymt. 

Hlekkur á streymi

Á fundinum verða tillögurnar kynntar og starfsfólk skipulagsdeildar og skipulagsráðgjafar svara fyrirspurnum.

Tillögurnar og skjöl sem tengjast þeim er að finna á vef Kópavogsbæjar:

Tillaga að deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.

Tillaga að aðalskipulagi Vatnsendahvarfs.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar Umhverfissviðs Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 fimmtudaginn 8. júní 2023.