Landsátak í sundi sett í Kópavogi

Frá setningu Syndum - Landsátaks í sundi 2023.
Frá setningu Syndum - Landsátaks í sundi 2023.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2023. Að þessu sinni var átakið sett í Sundlaug Kópavogs af fulltrúum ÍSÍ og bæjarstjóra Kópavogs, Ásdísi Kristjánsdóttur.

Sundlaug Kópavogs varð fyrir valinu því þar voru flestir metrar skráðir í sundátakinu í fyrra eða 1.941, 66 km. Átakið var fyrst haldið 2021 og þá syntu landsmenn samtals 11,6 hringi í kringum landið. Í fyrra voru syntir 10.2 hringir en markmiðið í ár er að fá enn fleiri til að vera með og uppgötva hvað sund er frábær alhliða hreyfing.

Fjölmennt var í sundlauginni við setninguna enda sundleikfimi undir stjórn Helgu Guðrúnar Gunnarsdóttur var við það að hefjast en hún stendur til boða þrisvar í viku.

Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er frábær hreyfing bæði til þess að hlúa að heilsunni og sem skemmtileg tómstundaiðja. Þetta átak er sprottið út frá Íþróttaviku Evrópu sem tókst með ágætum í ár. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, flutti stutt ávarp við setninguna og hvatti sundgarpa á svæðinu til þess að taka þátt í átakinu. “Góðar sundlaugar eru mikilvægt lýðheilsumál og við erum afar stolt af laugunum okkar í Kópavogi,” sagði Ásdís við tækifærið.

Nánari upplýsingar og skráning á syndum.is vefnum.