Elín Guðrún Pálsdóttir, Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra og Bergþóra Þórhallsdóttir.
Menntasvið Kópavogsbæjar hefur hlotið styrki úr Sprotasjóði Mennta- og barnamálaráðuneytisins til tveggja metnaðarfullra þróunarverkefna sem miða að því að efla skólastarf í sveitarfélaginu til framtíðar, alls rúmlega 10 milljónir. Verkefnin snúa annars vegar að félags- og tilfinningafærni barna í leikskólum og hins vegar að ábyrgri og faglegri innleiðingu gervigreindar í grunnskólum Kópavogs.
Lausnahringurinn í leikskólum Kópavogs
Leikskóladeild Menntasviðs Kópavogsbæjar hefur hlotið 4.000.000 kr. styrk úr Sprotasjóði til þróunarverkefnisins Lausnahringurinn í leikskólum Kópavogs. Verkefnið er heildstætt forvarnar- og samskiptaefni sem miðar að því að efla félags- og tilfinningafærni barna, styrkja jákvæða samskiptamenningu og stuðla að farsæld í leikskólastarfi.
Lausnahringurinn byggir á íslenskri lausnamiðaðri aðferð og leggur áherslu á sjálfstjórn, samkennd og uppbyggileg samskipti barna í leik, daglegum aðstæðum og samskiptum við jafningja og fullorðna. Verkefnið er samstarf níu leikskóla í Kópavogi: Álfaheiði, Barnaskóla Kársness, Fífusalir, Furugrund, Grænatúni, Læk, Núpi, Sólhvörfum og Urðarhóli. Innleiðingu og þjálfun leiðir Arnrún María Magnúsdóttir hjá Samtalinu, og verkefnastjóri er Elín Guðrún Pálsdóttir, leikskólaráðgjafi hjá Kópavogsbæ.
Verkefnið styður markmið Aðalnámskrár leikskóla, farsældarlög barna, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og innleiðingu Réttindaleikskóla UNICEF í Kópavogi. Lausnahringurinn hefst í ágúst 2026 og stendur til mars 2028.
Gervigreind í grunnskólum Kópavogs – þróunarverkefni 2026–2028
Hitt verkefnið sem hlýtur styrk úr Sprotasjóði að upphæð 6.650.000 kr. er Gervigreind í grunnskólum Kópavogs, þriggja ára þróunarverkefni sem spannar tímabilið 2026–2028. Markmið verkefnisins er að byggja upp sameiginlegan skilning á gervigreind meðal kennara, nemenda og annarra hagsmunaaðila og tryggja faglega, ábyrga og gagnlega notkun hennar í skólastarfi. Verkefnastjóri verkefnisins er Bergþóra Þórhallsdóttir, verkefnastjóri í upplýsingatækni.
Áhersla er lögð á að efla þekkingu og hæfni kennara og nemenda, móta sameiginleg siðferðisleg viðmið og þróa kennsluhætti í takt við hraðar tæknibreytingar. Verkefnið er skipulagt í skýra áfanga yfir tvö skólaár: undirbúning og fyrstu innleiðingu skólaárið 2026–2027 og aukið sjálfstæði nemenda og samþættingu gervigreindar skólaárið 2027–2028. Lokamat og framtíðarsýn liggja fyrir í lok skólaárs 2028.
Fjárfesting í framtíð skólastarfs í Kópavogi
Með þessum tveimur verkefnum er lögð áhersla á bæði farsæld barna og framtíð nemenda. Annars vegar með markvissri eflingu félags- og tilfinningafærni yngstu barna sveitarfélagsins og hins vegar með ábyrgri innleiðingu nýrrar tækni gervigreindarinnar í grunnskólastarfi. Styrkirnir úr Sprotasjóði styðja við langtímamarkmið Menntasviðs Kópavogsbæjar um vandað, framsækið og réttindamiðað skólastarf.