Ljóðstafur Jóns úr Vör

Ljóðasamkeppnin um Ljóðstaf Jóns úr Vör er haldin ár hvert.
Ljóðasamkeppnin um Ljóðstaf Jóns úr Vör er haldin ár hvert.

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar efnir í sautjánda sinn til árlegu ljóðasamkeppninnar um Ljóðstaf Jóns úr Vör.

Skilafrestur er til og með 8. desember og skal ljóðum skilað í fjórum eintökum undir dulnefni. Hverju ljóði skal fylgja umslag merkt með dulnefninu sem inniheldur upplýsingar um nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang skáldsins. Einungis umslög sem tilheyra ljóðum sem fá verðlaun eða viðurkenningu verða opnuð og öllum gögnum verður fargað að keppni lokinni. Athugið að ljóðin mega ekki hafa birst áður.

Greint verður frá niðurstöðum samkeppninnar og verðlaun veitt sunnudaginn 21. janúar 2018 í Salnum í Kópavogi. Verðlaunaafhendingin er liður í Dögum ljóðsins í Kópavogi, árlegri ljóðahátíð sem hefur þann tilgang að efla og vekja áhuga á ljóðlist.

Ljóðunum skal skilað með eftirfarandi utanáskrift:

Ljóðstafur Jóns úr Vör

Menningarhúsin í Kópavogi

Digranesvegi 1

200 Kópavogur

Skilafrestur sem fyrr segir er til og með 8. desember 2017.