Vídeóverk á Kópavogskirkju

Ljóslistaverki verður varpað á Kópavogskirkju á Safnanótt frá klukkan 18.30. Höfundur þess er lista…
Ljóslistaverki verður varpað á Kópavogskirkju á Safnanótt frá klukkan 18.30. Höfundur þess er listakonan Dodda Maggý.

Listaverk á Kópavogskirkju, tónleikar með Ásgeiri Ásgeirssyni bæjarlistamanni og Sigríði Thorlacius næntís bíó, vangaveltur um stjörnuhimininn, ratleikur og völundarhús er meðal þess sem stendur til boða á Safnanótt, 3. febrúar, í Kópavogi. Menningarhúsin í Kópavogi, Molinn ungmennahús og Kópavogskirkja taka þátt í safnanótt og stendur dagsskráin frá 18.00 til 23.00.

Á Sundlauganótt, 4. febrúar, er jóga í vatni, grín-spunasýning með Improv Ísland og tónleikar með Jóni Jónssyni meðal þess sem boðið er upp á fyrir gesti og gangandi í sundlaugum Kópavogs. Frítt er í sund frá 18.00 til 23.00 en viðburðir hefjast í laugunum klukkan 20.00.

Dagskráin í Kópavogi hefur aldrei verið viðameiri á en á þriðja tug viðburða eru í bænum í tengslum við Safna- og Sundlauganótt. 

Á viðburðasíðu

Nánar um Safnanótt:

Gestir á öllum aldri geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Kópavogi á Safnanótt. Boðið er upp á nær 20 viðburði og hefst dagskrá klukkan 18.00.

„Við fjölgum viðburðum í ár, svo sem tónlistarviðburðum, en Salurinn kemur sterkar inn en áður. Einnig verður tónlistarflutningur inni í Kópavogskirkju. Vídeóverkinu DeCore, eftir listakonuna Doddu Maggý, verður varpað á kirkjuna og lýsir hana upp til miðnættis. Með þessu viljum við um leið vekja athygli á því að steindir gluggar eftir Gerði Helgadóttur liggja undir skemmdum og að kirkjan er að hefja söfnun til að bjarga þeim,“ segir Arna Schram forstöðumaður Menningarhúsa Kópavogs.  „Ókeypis er inn á alla viðburði og stutt á milli Menningarhúsanna og því lítið mál að njóta ólíkrar dagskrár í Kópavogi á Safnanótt. Garðskálinn, veitingastaðurinn í Gerðarsafni, er auk þess  með pylsupartý í anda sýningarinnar í safninu.“​

Dagskrá Safnanætur:

Klukkan 18.30 verður friðarstund við Kópavogskirkju og tendrað á listaverki eftir Doddu Maggý sem varpað verður á kirkjuna. Í kjölfarið mun tónlistarhópurinn Umbra og Lenka Maténova organisti flytja tónlist. Stundin markar upphaf söfnunarátaks vegna viðgerða á gluggum kirkjunnar sem eru eftir Gerði Helgadóttur.

Í Gerðarsafni verður teiknileikurinn KvikStrik í Stúdío Gerðar frá 18.00-20.00 en klukkan 21.00 hefst sýningarstjóraspjall með Heiðari Kára Rannverssyni um sýninguna Normið er ný framúrstefna sem nú stendur yfir. Þá verður boðið upp á næntís bíó í samvinnu við Bíó Paradís í Gerðarsafni frá klukkan 18.00. Í Garðskálanum, veitingahúsi Gerðarsafns, verður pylsupartý og hamingjustund.

Í Salnum verður tríó Ásgeirs Ásgeirssonar, bæjarlistamanns Kópavogs, með tónleika ásamt Sigríði Thorlacius. Þau munu flytja ljúfan djass og suðræna sveiflu á tónleikum sem hefjast klukkan 21.00.

Í Héraðsskjalasafni Kópavogs verður sýnd heimildamynd um upphafsár Félagsmálastofnunar Kópavogs á 45 mínútna fresti frá klukkan 18.15 og þar verður einnig sýning á símaskrám.

Í Molanum ungmennahúsi opnar listasýning fjögurra nemenda úr Listaháskóla Íslands kl. 20.00. Sýningin ber heitið Breytileg brot og býður gestum upp á fjölbreytta og skemmtilega nálgun í ýmsum formum myndlistar og hljóðinnsetninga. Þau sem sýna eru Agnes Ársælsdóttir, Friðrik Margrétar- Guðmundsson, Hildur Elísa Jónsdóttir og Hjördís Gréta Guðmundssdóttir

Í Náttúrufræðistofu Kópavogs verður sýning sem fjallar um sögu náttúrugripasafna, sem ber heitið Náttúrufræðisafn, til hvers. Í tengslum við sýninguna verður flutt erindi klukkan 20.00 um sögu og tilgang náttúrufræðisafna.

Í Bókasafni Kópavogs verður ýmislegt á seyði. Frá 18-23.00 verður perlað, litað, spilar og boðið upp á völundarhús í anda Harry Potter. Sirrý spá skyggnist inn í framtíðina frá kl. 20.00, stjörnuhiminnn verður ræddur , Lóa Hlín heldur hugmyndasmiðju frá 21.-22.30, haldinn verður ratleikur um Bókasafnið sem teygir sig yfir á Náttúrufræðistofu Kópavogs og loks verða flutt bítlalög af sönghópnum The Darlings kl. 22.30.

Dagskrá Sundlauganætur:

Frítt er í sund í Kópavogi frá 18-23.00 á sundlauganótt 4. febrúar. Þetta er í annað sinn sem opið er í báðum laugum á sundlauganótt.

Í Sundlaug Kópavogs er boðið upp á aqua zumba partý klukkan 20.00, Improv Ísland sýnir grín-spunasýningu klukkan 21.00 g Jón Jónsson söngvari slær botninn í dagskrána með tónleikum klukkan 22.00.

Í Salalaug hefst dagskráin klukkan 20.00 með grínspunasýningu Improv-Íslandi. Klukkan 21:00 verður svo Gyða Dís jógakennari með léttar jógaæfingar í vatni sem verður svo fylgt eftir með slökun og samfloti til 22:00. Sundlaugin mun hafa 28 flotgræjur til útláns og þá gildir reglan, "fyrstur kemur, fyrstur fær". Einnig eru þeir sérstaklega velkomnir sem eiga sínar eigin flotgræjur. Frá 22:00 til 23:00 verður svo kveikt á kertum og róleg tónlist verður spiluð.

Vetrarhátíð

Safna- og sundlauganótt er hluti af Vetrarhátíð sem haldin er á öllu höfuðborgarsvæðinu. 

Dagskrá Vetrarhátíðar