Lokun vegna malbiksframkvæmda 16. 19. og 20.ágúst

Vegagerðin ráðgerir að malbika eftirfarandi kafla á Nýbýlavegi ef veður leyfir:

Mánudagskvöldið 16. ágúst er stefnt á að malbika aðra akrein Nýbýlavegar milli Þverbrekku og Birkigrundar, báðar akreinar verða lokaðar á meðan framkvæmdum stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 17:30 - 00:00. Bent er á hjáleiðir um Furugrund og Ástún annars vegar og Laufbrekku, Álfhólsveg og Þverbrekku hins vegar.

Fimmtudagskvöldið 19. ágúst er stefnt á að malbika aðra akrein Nýbýlavegar milli Túnbrekku og Birkigrundar, báðar akreinar verða lokaðar á meðan framkvæmdum stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 - 00:00. Bent er á hjáleiðir um Furugrund annars vegar og Laufbrekku og Túnbrekku hins vegar.

Föstudagskvöldið 20. ágúst er stefnt á að malbika á milli Birkigrundar og hringtorgs að Kringlumýrarbraut, hringtorg meðtalið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 - 00:00. Bent er á hjáleiðir um Auðbrekku og Hamraborg annars vegar og Hábraut og Hamraborg hins vegar.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdin kann að valda og eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.