Lokunartilkynning vegna malbikunarframkvæmda

Fimmtudaginn 10. júlí milli kl. 9:00 og 16:00 verða malbiksfræsingar á hluta Fífuhvammsvegar við Reykjanesbraut og römpum til og frá Reykjanesbraut til suðurs og götuhlutanir því lokaðir. Nánar tiltekið mun:

  • Fífuhvammsvegur til vesturs verða lokað við rampa til og frá Reykjanesbraut til norðurs. Hjáleið um Skógarlind eða Lindarveg.
  • Rampi frá Reykjanesbraut til suðurs til Fífuhvammsvegar verða lokað. Hjáleið um Hagasmára.
  • Rampi frá Fífuhvammsvegi til Reykjanesbrautar til suðurs verða lokað. Hjáleið um Skógarlind og Arnarnesveg.

Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.

Fífuhvammsvegur v. Reykjanesbaut  lokunartilkynning