Malbikun og lokanir á Digranesvegi annað kvöld

Lokun á Digranesvegi 25.sept
Lokun á Digranesvegi 25.sept

Stefnt er á að malbika Digranesveg á Kópavogshálsi miðvikudagskvöldið 25. sept. ef veður leyfir. Vinnusvæði og aðliggjandi götum verður lokað kl. 18:00 og búist er við að verkinu verði lokið og umferð verði aftur komin í samt lag kl. 03:00.

Ökumönnum er bent á að virða lokanir og nota hjáleiðir á meðan framkvæmdir standa yfir.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda.

Lokanir miðvikudaginn 25.sept vegna malbikunar