Margrét Júlía tekur sæti í bæjarstjórn Kópavogs

Margrét Júlía Rafnsdóttir, bæjarfulltrúi VG.
Margrét Júlía Rafnsdóttir, bæjarfulltrúi VG.

Margrét Júlía Rafnsdóttir hefur tekið sæti í bæjarstjórn Kópavogs sem fulltrúi VG. Margrét Júlía tekur við af Ólafi Þór Gunnarssyni sem baðst lausnar á fundi bæjarstjórnar 14.nóvember.

Margrét Júlía hefur verið varamaður í bæjarstjórn Kópavogs frá árinu 2010. Hún sat í umhverfis- og samgöngunefnd 2009-2014 og gegndi þar formennsku í tvö ár. Á núverandi kjörtímabili hefur hún verið  fulltrúi VG í skipulagsráð og tekur nú einnig sæti í bæjarráði.

Margrét Júlía er verkefnastjóri hjá Barnaheillum - Save the Children á Íslandi. Hún er menntaður kennari með meistaragráðu í umhverfis- og auðlindafræðum.