Náttúrufræðistofa Kópavogs 30 ára

Fálkinn á Náttúrufræðistofu Kópavogs
Fálkinn á Náttúrufræðistofu Kópavogs

Náttúrufræðistofa Kópavogs fagnar 30 ára starfsafmæli laugardaginn 7. desember. Af því tilefni verður leitað í upprunann og sýndir munir úr skeljasafni, steinasafni og fuglasafni Náttúrufræðistofunnar í anddyri hennar. Söfnin voru keypt á fyrstu árum stofunnar. Einnig verður upphaf og saga Náttúrufræðistofunnar rakin í máli og myndum á flatskjá. Afmælisveisla verður svo haldin kl. 15:00 og eru allir velkomnir.

Elsta skjal í vörslu Náttúrufræðistofunnar er dagsett 27. september 1970 og er hvatning Árna Waag, kennara í Kópavogi, til bæjaryfirvalda um að setja á stofn náttúrugripasafn og kaupa skeljasafn Kópavogsbúans Jóns Bogasonar en hann hafði verið um skeið starfsmaður Hafrannsóknastofnunar. 

Náttúrufræðistofa Kópavogs var stofnuð árið 1983. Í upphafi samanstóð safngripakosturinn af áðurnefndu skeljasafni Jóns Bogasonar og fuglasafni Hans Jörgensens sem var fyrsti skólastjóri Vesturbæjarskóla í Reykjavík, en Kópavogsbær keypti þessi söfn. Auk þess keypti bærinn hluta af steinasafni Halldórs Péturssonar en Halldór og kona hans Svava Jónsdóttir gáfu restina af safninu. Stærst þessara safna var skeljasafnið en auk söfnunargleðinnar var Jón Bogason afbragðs teiknari og seinna gaf Jón Náttúrufræðistofunni eftirprent af mörgum teikninga sinna.

Eintök úr þessum upprunasöfnum verða sem fyrr segir til sýnis í anddyrinu sem og og eftirprentanir af teikningum Jóns af skel- og krabbadýrum.  Þá verður gestum Safnahússins boðið upp á afmælisköku á afmælisdaginn.

Forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs er Finnur Ingimarsson.

 

Náttúrufræðistofa Kópavogs