Núvitund í nóvember

Hist verður í Guðmundarlundi í fyrstu tveimur göngunum.
Hist verður í Guðmundarlundi í fyrstu tveimur göngunum.

Kópavogur býður íbúum í ókeypis núvitundargöngur í nóvembermánuði þar sem við göngum saman og upplifum náttúruna. Við hittumst og fræðumst stuttlega um hvernig við getum verið meira til staðar í lífinu, ræktað huga og heila, dregið úr streitu og aukið vellíðan í daglegu lífi. Í framhaldinu förum við út og æfum okkur í núvitund og upplifun umhverfisins.

Leiðbeinandi verður Bryndís Jóna Jónsdóttir en hún hefur lokið diplomanámi á masterstigi í jákvæðri sálfræði, MA námi í náms- og starfsráðgjöf með áherslu á fræðslu og starfsánægju.

 

Gengið verður út frá eftirfarandi staðsetningum:

 

Þriðjudag, 12. nóvember kl: 17:30 – 19:00

Hittumst í Guðmundarlundi við nýtt húsnæði Kópavogsbæjar

 

Sunnudag, 17. nóvember kl: 12:00 – 13:30:  Hugsað fyrir alla fjölskylduna

Hittumst í Guðmundarlundi við nýtt húsnæði Kópavogsbæjar

Þessi ganga er hugsuð fyrir alla fjölskylduna en hér æfum við okkur í því að stilla inn á skynfærin og upplifa náttúruna á fjölbreyttan hátt í gegnum hreyfingu, leik og kyrrð. Æfingarnar henta ungum sem öldnum.

 

Þriðjudag, 19. nóvember kl: 17:30 – 19:00.

Hittumst í húsi Siglingafélagsins Ýmis við Naustavör