Nýr vefur félagsmiðstöðvanna

Forsíða vefsins
Forsíða vefsins

Opnaður hefur verið nýr vefur fyrir félagsmiðstöðar unglinga í Kópavogi og frístundaklúbbinn Hrafninn, en hann er frístundaúrræði fyrir börn og unglinga með sérþarfir. Hlutverk heimasíðunnar er að veita nánari upplýsingar um þá starfssemi sem boðið er upp á hverjum stað sem og sameiginlega viðburði, fréttir og fl. Félagsmiðstöðvar unglinga í Kópavogi eru 9 og er staðsetning þeirra í öllum grunnskólum Kópavogs. Slóðin á heimasíðuna er http://felagsmidstodvar.kopavogur.is/