Okkar Kópavogur: Kosning hafin

Okkar Kópavogur - Taktu þátt!
Okkar Kópavogur - Taktu þátt!

Kosning er hafi í verkefninu Okkar Kópavogur. Alls eru 100 hugmyndir í kosningu, 20 í hverju hverfi. Kosningin er rafræn og geta íbúar Kópavogs tekið þátt. Hugmyndirnar eru af mjög fjölbreyttum toga og kosta frá einni milljón til tuttugu milljóna í framkvæmd. Hverfunum hefur verið ráðstafað fé í hlutfalli við fjölda íbúa en alls verður 200 milljónum varið til framkvæmda verkefnanna.

Hugmyndasöfnun verkefnisins fór fram í vor, bæði á vef verkefnisins og íbúafundum.

 „Kópavogsbúar sýndu verkefninu Okkar Kópavogur mikinn áhuga og skiluðu fjölmörgum spennandi hugmyndum inn. Nú er komið að því að kjósa og ég vonast til að sem flestir taki þátt og hafi þannig áhrif á umhverfi sitt og nærsamfélag,“ segir Ármann Kr. Ólafson bæjarstjóri.

Með verkefninu Okkar Kópavogur er verið að efla íbúalýðræði í bænum og auka samráð íbúa og bæjaryfirvalda.

Við viljum virkja íbúa til að taka þátt í verkefnum með okkur og Okkar Kópavogur er dæmi um það. Nú er tækifæri fyrir íbúa að velja verkefni og taka þannig þátt í forgangsröðun fjármuna sveitarfélagsins,“ segir Theodóra S. Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs.

Kosning á milli verkefna stendur frá 25. ágúst til 4. september. Íbúar Kópavogs, 16 ára og eldri geta tekið þátt. Velja þarf eitt hverfi til að kjósa í en þátttakendur þurfa ekki að velja hverfi eftir búsetu.

Kosningin fer fram á vef verkefnisins www.kopavogur.is/okkarkopavogur

 Rafrænn kjörstaður verður á Bókasafni Kópavogs og í þjónustuveri bæjarskrifstofanna á meðan á kosningu stendur. Þar verður hægt að fá aðgang að tölvum og aðstoð. Þjónustan er veitt á opnunartíma.

Framkvæmdir á verkefnum hefjast í haust, en mun ljúka á næsta ári.

Nánari upplýsingar: www.kopavogur.is/okkarkopavogur