Ormadagar í Kópavogi

Fjör á Ormadögum í Kópavogi.
Fjör á Ormadögum í Kópavogi.

Á fimmta þúsund leik- og grunnskólabörn í Kópavogi taka þátt í barnamenningarhátíð Kópavogs, Ormadögum, sem hefst mánudaginn 19.maí. Á Ormadögum mæta börn í Kópavogi á ýmsa menningarviðburði í menningarhúsum Kópavogs á skólatíma, sækja tónleika, listasmiðjur og fræðslu. Dagskránni lýkur svo með glæsilegri hátíð á Borgarholtinu í Kópavogi helgina 24. til 25. maí þar sem öll börn eru velkomin.

Ormadagar eru nú haldnir í þriðja sinni en hátíðin hefur aldrei verið jafn umfangsmikil og nú. "Það er mjög mikilvægt og skemmtilegt fyrir barna- og fjölskyldumenningu að geta boðið upp á svo stóra og glæsilega hátíð með fjölbreyttum atriðum sem allir fá að njóta sér að kostnaðarlausu," segir Pamela De Sensi stjórnandi hátíðarinnar.

Laugardaginn 24. maí verður ýmislegt á seyði í og við menningarstofnanir Kópavogs; Sirkus, lista- og menningarsmiðjur, tónleikar og hoppukastalar. Ormadögum lýkur svo sunnudaginn 25. maí með barnamenningarmessu og tónleikum í Kópavogskirkju og sundlaugapartýi í Sundlaug Kópavogs.

Ormadagar eru styrktir með myndarlegum hætti af Kópavogsbæ og haldnir í samvinnu við menningarstofnanir Kópavogsbæjar á Borgarholtinu en þær eru: Tónlistarsafnið, Bókasafnið, Salurinn, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Tónlistarskólinn og Molinn. Eitt meginmarkmið hátíðarinnar er að börn í Kópavogi kynnist þessum stofnunum og upplifi dagskrá sem sérstaklega er miðuð við þeirra aldur.

Heimasíða Ormadaga.