Ormadagar verða í apríl

Ormadagar hafa verið haldnir hátíðlegir í nokkur ár, hér er mynd frá árinu 2014.
Ormadagar hafa verið haldnir hátíðlegir í nokkur ár, hér er mynd frá árinu 2014.

Ormadagar, barnamenningarhátíð fyrir leikskólabörn í Kópavogi, eru á næsta leiti en þeir fara fram í menningarhúsum Kópavogsbæjar dagana 18. til 24. apríl. Tónlistarskóli Kópavogs tekur einnig þátt í hátíðinni.

Leikskólabörnum úr öllum leikskólum bæjarins verður á Ormadögum boðið að kynnast fjölbreyttu lista- og menningarstarfi menningarhúsa bæjarins. Verður þeim meðal annars boðið á tónleika og á hljóðfærasmiðjur en einnig fá þau fræðslu um bókaorma og alvöru orma.

 

Á hátíðinni fá leikskólabörn ekki bara tækifæri til að fræðast um listir og menningu heldur fá þau einnig innsýn í starf menningarhúsa á borð við myndlistarsafn, tónleikahús, tónlistarskóla og bókasafn. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er sem fyrr Pamela De Sensi tónlistarkona.

 

Stefnt er að því að hátíðinni ljúki á laugardeginum 24. apríl með sérstakri ormadagskrá sem hefst kl. 13 á fjölskyldudegi menningarhúsanna.

Nánari dagskrá Ormadaga verður kynnt á vef og Facebook síðu Kópavogsbæjar þegar nær dregur.