Öryggi gangandi vegfaranda aukið við Hlíðarhjalla

Kópavogur.
Kópavogur.

Milli Hlíðarhjalla 2 og Álfaheiðar eru í gangi framkvæmdir sem hafa það að markmiði að bæta umferðaröryggi gangandi vegfarenda en fjölmörg börn eiga þarna leið um, í og úr skóla, í frístund og íþróttastarf.

  • Gatan er þrengd um um það bil hálfan metra til að búa til pláss fyrir gangstétt austan megin götunnar en þar hefur verið mjór gangstéttarræma sem er á engan hátt í samræmi við góða umferðaröryggishætti. Settar verða zebrabrautir við gatnamót húsagatna austan megin á götunni og gatnamót endurmótuð til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda og stytta þann tíma sem gangandi vegfarendur þurfa til að fara yfir götuna.
  • Gatnamótin við húsagöturnar hafa ekki haft öryggi gangandi vegfarenda, þá sérstaklega yngri kynslóðarinnar og þeirra sem eiga erfitt um gang að leiðarljósi en breyting verður nú á. Settar verða tvær upphækkaðar gönguþveranir í Hlíðarhjalla sem tengjast gangstéttum vestan megin götunnar. Komið verður fyrir gangbraut við gatnamót Skálaheiði og Hlíðarhjalla og skerpt á beygjum til að koma þeim fyrir með góðu móti. Einnig verður malbiksyfirlögn götunnar endurnýjuð.
  • Eftir breytingar mun þessi hluti Hlíðarhjalla verða keimlíkur samskonar götum þar sem gangstéttir eru beggja megin götunnar og gönguþveranir taki mið af öryggi gangandi vegfarenda en ekki þægindum akandi vegfarenda. Breidd gatnamóta að húsagötum austan Hlíðarhjalla voru áður í verulegri yfirbreidd en verða nú í hefðbundinni breidd þar sem búast má við gangandi umferð.
  • Um er að ræða hefðbundna umferðaröryggisaðgerð og minniháttar inngrip í aðstæður.

Beðist er velvirðingar á því raski sem framkvæmdunum fylgir en eftir að þeim lýkur ættu aðstæður fyrir gangandi vegfarendur að vera mun öruggari en þær voru áður án þess að öryggi annarra er skert.