Plokkað í Kópavogi

Plokkdagur Vinnuskóla Kópavogs var settur í Fossvogsdal.
Plokkdagur Vinnuskóla Kópavogs var settur í Fossvogsdal.

Dagurinn „Plokkum saman“ var haldinn mánudaginn 11. júní en Vinnuskóli Kópavogs hafði frumkvæði að skipulagningu dagsins, sem haldinn var í fyrra í fyrsta sinn.

Hreinsunardagurinn hófst formlega klukkan 8.30 í Fossvogsdal þar sem unglingar úr Kópavogi og Reykjavík hittust auk starfsmanna Vinnuskólanna, fulltrúa Landverndar og Umhverfisstofnunar. Það var bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, sem setti átakið formlega.

450 starfsmenn á vegum Vinnuskóla Kópavogs þræddu bæinn en auk þessa er Vinnuskólinn í Reykjavík í samstarfi við Vinnuskólann og verða því alls 1.000 unglingar að plokka og tína upp allt rusl sem á vegi þeirra verður.

Auk Vinnuskólanna tók Þjónustumiðstöð Kópavogbæjar þátt í hreinsuninni og voru allir starfsmenn þjónustumiðstöðvar á ferðinni í dag. 

Þá tók Blái herinn, Landvernd og Umhverfisstofnun þátt í deginum og liðsinnir við hreinsun bæjarins.

Leikskólar Kópavogs tóku einnig taka þátt í verkefninu og plokkaði yngsti aldurhópurinn plokka saman þennan dag.

Vinnuskólinn hvatti alla Kópavogsbúa til að taka þátt í að hreinsa bæinn og fjarlægja allt plast, hvort sem það er í garðinum heima, í kringum húsið, á bílastæðinu eða á leiðinni í vinnuna. 

Hægt var að hringja í Þjónustumiðstöð Kópavogs og tilkynna um staðsetningu afrakstur dagsins sem var hirtur upp af starfsmönnum.