Ráðning í starf verkefnastjóra íbúatengsla

Sigrún María Kristinsdóttir
Sigrún María Kristinsdóttir

Sigrún María Kristinsdóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra íbúatengsla. Um er að ræða nýtt starf á stjórnsýslusviði Kópavogsbæjar. Með starfinu er ætlunin að efla þátttökulýðræði hjá Kópavogsbæ og horft til Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í því sambandi, en í markmiði 16.7 segir að teknar verði ákvarðanir á öllum sviðum þar sem brugðist skuli við aðstæðum og víðtæk þátttaka tryggð. 

Verkefnastjóri íbúatengsla mun þannig bera ábyrgð á stefnumörkun á sviði þátttökulýðræðis, mun skipuleggja íbúafundi, stýra verkefninu „Okkar Kópavogur“, sem snýr að þátttöku íbúa við ráðstöfun fjármagns til framkvæmda, og framkvæmd íbúakosninga.

Sigrún María Kristinsdóttir er með BFA gráðu frá Viktoríuháskóla í Kanada í ritlist og BA gráðu í enskum bókmenntum frá sama skóla. Hún er með MA gráðu í umhverfis- og auðlindafræðum frá HÍ þar sem hún vann m.a. rannsókn um íbúalýðræði á Íslandi. Þá er hún með doktorsgráðu í umhverfis- og auðlindafræði frá HÍ en áherslan í doktorsnámi beindist m.a. að sjálfbærni samfélaga. 

Sigrún María hefur undanfarin ár starfað hjá verkfræðistofunni Eflu við gerð mats á umhverfisáhrifum framkvæmda og hefur m.a. í þeim verkefnum séð um framkvæmd og úrvinnslu samfélagsrannsókna. Þá hefur hún starfað sem fjölmiðla- og upplýsingafulltrúi og um nokkurra ára skeið við blaða- og fréttamennsku.