Ráðstafanir vegna veðursins

mynd af snjómokstursbíl
mynd af snjómokstursbíl

Vegna óveðursins sem spáð er seinnipartinn hafa Almannavarnir lýst yfir óvissustigi um allt land.  Veður verður slæmt á höfuðborgarsvæðinu.
Foreldrar/forráðamenn eru beðnir um að tryggja að börn verði sótt fyrir klukkan 16:00, þannig að þau séu trygg heima þegar veðrið skellur á. Jafnframt hafa skólar verið beðnir um að tryggja að börn yfirgefi ekki skólana nema í fylgd með fullorðnum, enda eru þau örugg í skólanum

Allar skipulagðar æfingar á vegum íþróttafélaganna í Kópavogi hafa verið felldar niður í dag
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og  á Facebook-síðu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Hægt er að fylgjast með viðvörunum og nauðsynlegum upplýsingum tengdum veðrinu á vefsíðu Almannavarna www.almannavarnir.is