Ráðstefna ungra sýningarstjóra úr Kópavogi

Sýningarstjórar Vatnsdropans í Kópavogi.
Sýningarstjórar Vatnsdropans í Kópavogi.

Ungir sýningarstjórar, sautján börn úr Kópavogi á aldrinum 8-15 ára, halda ráðstefnu laugardaginn 18. febrúar næstkomandi þar sem þau bjóða til sín sérfræðingum til að ræða málefni sem tengjast undirbúningi listasýningar sem þau munu sýningarstýra í vor í menningarhúsunum í Kópavogi.

Verkefnið er hluti af alþjóðlega barnamenningarverkefninu Vatnsdropanum sem Kópavogsbær stofnaði til með H.C. Andersen safninu í Danmörku, Múmín safninu í Finnlandi og Ilon‘s Wonderland í Haapsalu í Eistlandi. Eitt meginstef Vatnsdropans er að tengja saman boðskap og gildi sígildra skáldverka barnabókahöfunda á borð við Tove Jansson, Astrid Lindregn og H.C. Andersen við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Þessir höfundar eiga það allir sameiginlegt að brýna fyrir lesendum að bera virðingu fyrir náttúrunni, rétta þeim sem minna mega sín hjálparhönd og takast á við erfiðleika með bjartsýni að vopni.

Á ráðstefnuna fá Ungu sýningarstjórarnir til sín þjóðþekkta einstaklinga úr ólíkum áttum til að ræða þær áherslur sem þeir munu vinna með í Vatnsdropanum í vetur og snúa að sameiginlegum gildum höfundaverka hinna norrænu rithöfunda við Heimsmarkmið nr. 5 um jafnrétti kynjanna og nr. 10 um sjálfbærar borgir og samfélög ásamt umhverfismálum.

Sýningarstjórarnir eru: Aldís Rós Andrésdóttir, Brynja S. Jóhannsdóttir, Emil Ólafsson, Friðrika Eik Z. Ragnars, Hekla Bjarkey Magnadóttir, Héðinn Halldórsson, Inga Bríet Valberg, Íris Anna Elvarsdóttir, Karen Sól Heiðarsdóttir, Katrín Ólafsdóttir, Matthildur Daníelsdóttir, Saga Ásgeirsdóttir, Sophie Eik Karlsdóttir Stock, Stefanía Rós Sigurðardóttir, Þorbjörg Gróa Eggertsdóttir, Þorbjörn Úlfur Viðarsson, Vaka Margrét Gylfadóttir og Valmundur Rósmar Eggertsson

Ráðstefnan hefst kl. 14 í anddyri Salarins – tónleikahúss og er öllum opin.

Gestir Ungu sýningarstjóranna á laugardaginn verða:

Arndís Þórarinsdóttir

rithöfundur

Freyr Eyjólfsson

verkefnastjóri hringrásarhagkerfisins hjá Sorpu

Guðbjörg Gissurardóttir

Í Boði náttúrunnar

Gylfi Þór Þorsteinsson

aðgerðarstjóri Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Hildur Hákonardóttir

myndlistarkona

Sigyn Blöndal

réttindasérfræðingur hjá UNICEF á Íslandi

Vigdís Jakobsdóttir

listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík

 

,,Það er mjög gaman í Vatnsdropanum að skapa og hitta listafólk“ - Inga Bríet Valberg, 10 ára þátttakandi í Ungum sýningarstjórum

,, Mér finnst Vatnsdropinn mjög skemmtilegur og er mjög spenntur fyrir að halda þessa ráðstefnu“ - Héðinn Halldórsson, 11 ára þátttakandi í Ungum sýningarstjórum.

,,Þetta er þriðja árið í röð sem við fáum til okkar Unga sýningarstjóra til að setja upp sýningar og vinna að smiðjum tengdum Vatnsdropanum. Mikil eftirspurn er eftir þátttöku í Vatnsdropanum og nú vita öll börn í Kópavogi um hvað hann snýst. Verkefnið hóf göngu sína fyrir liðlega fjórum árum og hefur margfaldast að vexti og umfangi. Hugmyndafræðin að baki Vatnsdropanum er endalaus uppspretta fyrir börnin og við munum ljúka þessu fallega verkefni með útgáfu á aðferðarfræði sem aðrar menningarstofnanir geta nýtt sér í framtíðinni,“ segir Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála í Kópavogi og upphafsmaður Vatnsdropans.