Rafrænt heimaþjónustukerfi

Á myndinni eru frá vinstri: Jóhann Grétarsson og Jóhann R. Benediktsson frá Curron, Þórunn Erna Þór…
Á myndinni eru frá vinstri: Jóhann Grétarsson og Jóhann R. Benediktsson frá Curron, Þórunn Erna Þórðardóttir, eldri borgari í Kópavogi, Theódóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri og Björg Long, starfsmaður heimaþjónustunnar.

Heimilisauðkenni fyrir heimaþjónustu í Kópavogsbæ var formlega tekin í notkun þegar Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri afhenti Þórunni Ernu Þórðardóttur eldri borgara í Kópavogi heimilisauðkenni.

Heimilisauðkennið er hluti af rafrænu heimaþjónustukerfi sem er nýjung í velferðartækni. Það er þróað af hugbúnaðarfyrirtækinu Curron en fulltrúar þess voru viðstaddir afhendinguna ásamt Theodóru S. Þorsteinsdóttur formanni bæjarráðs og starfsmönnum Kópavogsbæjar.

Auðkennið, sem kallast á við símtæki heimaliða, hefur meðal annars að geyma upplýsingar um nauðsynlega þjónustu og fylgist með komu heimaliðanna og lengd þjónustunnar.  Í því felst mikið hagræði og einföldun á allri umsýslu.  

Heimaþjónustukerfið er notað til tímaskráningar, og þjónustustýringar og heldur kerfið jafnframt utan um alla samninga heimaþjónustunnar. Kópavogsbær vonast til að með þessari tækni verði öll framkvæmd heimaþjónustu við bæjarbúa markvissari.

Næstu skref í kerfinu, sem verður í áframhaldandi þróun, eru að veita aðstandendum, með leyfi þeirra sem nota heimaþjónustu, aðgang að kerfinu. Með því móti geta þeir fylgst með þjónustunni og verið í gagnkvæmdum samskiptum sín á milli og við þjónustunotendur.

Nánar um heimaþjónustu Kópavogs

Nánar um Curron