Rafrænt sundkort komið í sölu

Í Kópavogslaug, sem er önnur tveggja almenningslauga í Kópavogi.
Í Kópavogslaug, sem er önnur tveggja almenningslauga í Kópavogi.

Kaupa sundkort

Kópavogsbær hefur tekið í notkun rafrænt sundkort sem hægt er að kaupa á netinu og setja beint í veskið í símanum. Kortið gildir í Salalaug og Kópavogslaug.

Með rafræna sundkortinu geta notendur gengið frá kaupum þegar þeim hentar, hvort sem það er í síma eða tölvu. Að kaupum loknum er kortinu bætt í símaveski notanda og það síðan virkjað í afgreiðslu sundlauganna áður en það er notað í fyrsta sinn.

Í fyrstu útgáfu er hægt að kaupa árskort í sundlaugar Kópavogs. Stefnt er að því að punktakort og stakir miðar bætist við söluna fljótlega.

„Við viljum að þjónusta Kópavogsbæjar sé einföld og aðgengileg. Rafræna sundkortið er gott dæmi um lausn sem auðveldar fólki að ganga frá kaupum sjálft og hafa kortið alltaf við höndina í símanum,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.

Nánari upplýsingar um verkefnið.