Reebok fitness í sundlaugum Kópavogs

Ágúst Ágústsson frá Reebok Fitness og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs skrifuðu undir samni…
Ágúst Ágústsson frá Reebok Fitness og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs skrifuðu undir samning um rekstur líkamsræktarstöðva í sundlaugum Kópavogs.

Kópavogsbær og Reebok Fitness hafa skrifað undir samning um áframhaldandi rekstur Reebok Fitness á líkamsræktarstöðvum í sundlaugum Kópavogs, Salalaug og Sundlaug Kópavogs. Samningurinn er til fimm ára með möguleika á árs framlengingu, tvisvar sinnum.

Í Salalaug er tækjasalur en í Sundlaug Kópavogs er einnig boðið upp á tíma í sal.

Rekstur líkamsræktar í sundlaugum í Kópavogi var boðinn út í vor og barst eitt tilboð, frá Reebok Fitness. Bæjarráð samþykkti í byrjun júní að gengið yrði til samninga um reksturinn.