Risakaka og barnamenning

Bæjarstjóri og bæjarfulltrúar tóku á móti íbúum í Smáralind, laugardaginn 10.maí í tilefni afmælis …
Bæjarstjóri og bæjarfulltrúar tóku á móti íbúum í Smáralind, laugardaginn 10.maí í tilefni afmælis bæjarins.

Fjölmargir lögðu leið sína á afmælishátíð í Kópavogi í dag, 10.maí, sem haldin er í tilefni 70 ára afmælis bæjarins. Í Smáralind var boðið upp á afmælisköku af stærri gerðinni, blöðrur og Samkór Kópavogs söng afmælissönginn og fleiri lög.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri bauð gesti velkomna og stóð vaktina ásamt bæjarstjórn Kópavogs í kökuskurði. Á annað þúsund þáðu kökusneið og má þess geta að afmæliskakan var súkkulaðikaka með vanillukremi, skreytt afmælismerki bæjarins og bökuð af Reyni bakara.

Í menningarhúsunum fór fyrri dagur uppskeruhátíðar Barnamenningarhátíðar fram. Boðið var upp á tröllasmiðju og leikrit og var vel mætt á viðburði dagsins.

Á morgun, sunnudag, heldur afmælishátíðin áfram en afmælisdagurinn sjálfur er á morgun, 11.maí. Verður meðal annars boðið upp á tónleika og smiðjur. Þá verða stultur, vatnsull og vesen með Memm á útisvæðinu við menningarhúsin.