- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Skýrsla um samanburð húsnæðiskosta fyrir stjórnsýslu Kópavogsbæjar er nú aðgengileg á vef bæjarins. Í skýrslunni, sem unnin var af verkfræðistofunni Mannvit, er leitast við að svara hvort beinn fjárhagslegur ábati og eða óbeinn ábati geti verið að því að flytja skrifstofur Kópavogsbæjar í nýtt húsnæði. Álit endurskoðanda bæjarins á skýrslunni er einnig aðgengilegt. Áhugasamir geta nálgast álit endurskoðanda hér .
Tillaga um heimild til að kaupa húsnæði fyrir stjórnsýslu Kópavogsbæjar í nýja Norðurturninum í Smáralind verður tekin fyrir í bæjarstjórn Kópavogs þriðjudaginn 23.júní.
Um er að ræða opinbert eintak skýrslu þar sem búið er að taka út fjárhagslegar upplýsingar sem varða viðskiptahagsmuni bæjarins.