Símafrí í grunnskólum Kópavogs

Samráðshópur frá vinstri: Kristgerður Garðarsdóttir, Amanda K.Ólafsdóttir, Óðinn Helgi Pálsson, Ásd…
Samráðshópur frá vinstri: Kristgerður Garðarsdóttir, Amanda K.Ólafsdóttir, Óðinn Helgi Pálsson, Ásdís Kristjánsdóttir, Halla Björg Evans, Bergþóra Þórhallsdóttir, Ingibjörg Ýr Pálmadóttir og Anna Birna Snæbjörnsdóttir. Á myndina vantar Sigrúnu Bjarnadóttur og Zusönnu Buda.

Sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi í Kópvogi hefur verið samþykktur að undangengnu samráði við nemendur, foreldra og fagfólk í grunnskólum í Kópavogi. Í sáttmálanum felst meðal annars að símar eru ekki sýnilegir í skóla- og frístundastarfi og frímínútur verða skjálausar. Markmið sáttmálans er að skapa öruggt og félagslega sterkt skóla- og frístundaumhverfi þar sem nemendur fá tækifæri til þess að einbeita sér að námi, samskiptum og vellíðan.

„Þetta er mikilvægt og jákvætt skref sem við erum að stíga með símafríi í grunnskólum og ég fann það þegar ég heimsótti alla grunnskóla Kópavogs að óskir um símafrí komu ekki síst frá nemendum. Þá hef ég einnig fengið fjölmargar ábendingar frá foreldrum um að Kópavogsbær stígi skref sem þetta. Ég er almennt ekki hrifin af boðum og bönnum og þess vegna er svo mikilvægt að þessi ákvörðun sé tekin í samráði við nemendur, starfsfólk og foreldra. Símafrí í grunnskólum þýðir að tækifæri gefst til þess að styrkja félagsleg tengsl nemenda og ekki síst stuðla að aukinni einbeitingu í námi,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.

Sáttmálinn er sameiginleg yfirlýsing skólasamfélags Kópavogs og byggir á trausti, samvinnu og ábyrgð í símanotkun. Í samráði við ungmennaráð er sáttmálinn útfærður með ólíkum hætti eftir aldri barna. Nemendur í 1. - 7. bekk geyma síma og símaúr heima eða á hljóðri stillingu í tösku. Að tillögu ungmennaráðs er nemendum í 8. - 10. bekk treyst til að bera sjálf ábyrgð á að geyma síma þar sem hann truflar þau ekki. Frímínútur verða skjálausar. Lögð er áhersla á að fullorðnir í skólastarfi verði fyrirmyndir og að ábyrg skjánotkun sé lærdómsferli. Samhliða innleiðingu sáttmálans verður framboð af afþreyingu í skólum aukið.

Við undirbúning sáttmálans var starfræktur samráðshópur hagaðila sem í sátu Zuzanna Buda og Óðinn Helgi Pálsson, grunnskólanemendur og fulltrúar ungmennaráðs, Halla Björg Evans, fulltrúi foreldra úr stjórn Samkóps, Sigrún Bjarnadóttir skólastjóri Álfhólsskóla, Kristgerður Garðarsdóttir kennari, Bergþóra Þórhallsdóttir verkefnastjóri upplýsingatækni í skólastarfi, Ingibjörg Ýr Pálmadóttir deildarstjóri grunnskóladeildar Amanda K.Ólafsdóttir skrifstofustjóri menntasviðs og Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs.

Þess má geta að nemendur, starfsfólk skóla og foreldrar taka virkan þátt í að meta hvernig gengur og fá tækifæri til að koma að endurskoðun sáttmálans þegar reynsla hefur skapast.

Sáttmáli um símafrí